Nánast allir vilja að ríkið fjármagni Landspítalann

15850516779_84045ca1e5_z.jpg
Auglýsing

Lít­ill sem eng­inn ­stuðn­ingur er við það að fjár­mögnun Land­spít­al­ans sé á hendi ann­arra en rík­is­ins. Þrír af hverjum fjórum aðspurðum telja að rík­is­sjóður eigi að fjár­magna spít­al­ann að fullu. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar sem Við­skipta­ráð lét gera á við­horfi almenn­ings til fjár­mögn­unar stofn­ana og emb­ætta á Íslandi.

Eitt pró­sent svar­enda sögðu að þeir teldu að fjár­mögnun Land­spít­al­ans ætti að vera að litlu eða engu leyti úr rík­is­sjóði. 2,4 pró­sent sögð­ust telja að ríkið ætti að fjár­magna spít­al­ann til helm­ings. 22,5 pró­sent telja að rík­is­sjóður eigi að fjár­magna spít­al­ann að mestu leyti. Lang­flest­ir, eða 74 pró­sent, vilja að ríkið fjár­magni spít­al­ann að öllu leyti.

815 voru spurðir í könn­un­inni og svar­hlut­fallið við spurn­ing­unni var 94,6 pró­sent. Hlut­fall þeirra sem vilja að ríkið fjár­magni spít­al­ann að mestu eða öllu leyti er lægst hjá yngsta ald­urs­hópn­um, undir 25 ára, en þar er það 92,5 pró­sent. Þá er minnstur stuðn­ingur við fjár­mögnun rík­is­ins meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins, 90,9 pró­sent, og meðal Pírata, 91,6 pró­sent.

Auglýsing

Meiri­hluti vill fjár­magna lög­reglu, Rík­is­út­varp og Háskóla Íslands



92,2 pró­sent aðspurðra vilja að ríkið fjár­magni starf­semi lög­regl­unnar að öllu eða miklu leyti. 1,2 pró­sent töldu að ríkið ætti ekki að fjár­magna lög­regl­una að neinu leyti eða að litlu leyti.

55 pró­sent svar­enda sögðu að ríkið ætti að fjár­magna Rík­is­út­varpið að öllu eða mestu leyti, en 26,8 pró­sent að litlu eða engu leyti. Tals­verður munur var á svörum eftir aldri, stjórn­mála­skoð­unum og mennt­un­ar­stigi. Þeir sem eru mennt­aðri eru hlynnt­ari rík­is­fjár­mögnun RÚV og kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru and­víg­astir því að ríkið fjár­magni RÚV.

Þá sögð­ust 71,1 pró­sent vilja að ríkið fjár­magni starf­semi Háskóla Íslands að öllu eða miklu leyti. Aðeins 7,5 pró­sent vilja að ríkið komi lítið eða ekk­ert að fjár­mögnun HÍ, og 21,4 pró­sent vilja að ríkið fjár­magni skól­ann um helm­ing.

Í aðdrag­anda Við­skipta­þings lét Við­skipta­ráð gera skoð­ana­könnun um fjár­mögnun hinna ýmsu stofn­ana og emb­ætta. Könn­un­ina í heild sinni má sjá hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None