Nauðsynlegt að sektarheimildir séu í samhengi við efnahagslegan styrkleika

Samkeppniseftirlitið telur að 30 þúsund króna dagsektarheimild Fiskistofu, sem lögð er til í nýju frumvarpi ráðherra, muni ekki hafa tilhlýðileg varnaðaráhrif á stórfyrirtæki í sjávarútvegi sem velti tugmilljörðum króna á ári.

Fiskistofa mun samkvæmt frumvarpi ráðherra fá heimild til að sekta sjávarútvegsfyrirtæki um 30 þúsund krónur á dag fyrir að skila ekki inn upplýsingum sem þeim ber að veita, eins og vigtar- og ráðstöfunarskýrslum.
Fiskistofa mun samkvæmt frumvarpi ráðherra fá heimild til að sekta sjávarútvegsfyrirtæki um 30 þúsund krónur á dag fyrir að skila ekki inn upplýsingum sem þeim ber að veita, eins og vigtar- og ráðstöfunarskýrslum.
Auglýsing

Sam­keppn­is­eft­ir­litið lýsir yfir efa­semdum um það að 30 þús­und króna dag­sekt­ar­heim­ild, sem Fiski­stofa mun fá ef frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra um eft­ir­lit stofn­un­ar­innar verður óbreytt að lög­um, muni hafa til­hlýði­leg fæl­ing­ar- og varn­að­ar­á­hrif.

Í umsögn sinni um þing­málið ítrekar Sam­keppn­is­eft­ir­litið fyrri til­mæli sín um að sekt­ar­fjár­hæð­ir, „þar sem þær séu ekki í neinu sam­hengi við mis­mun­andi efna­hag og fjár­hags­legan styrk­leika“ þeirra aðila sem Fiski­stofa hefur eft­ir­lit með. Bent er á að velta stærstu útgerð­ar­fé­laga lands­ins hafi hlaupið á tug­millj­örðum króna árið 2021.

Sam­kvæmt frum­varpi mat­væla­ráð­herra, sem dreift var á Alþingi í febr­ú­ar, verður hægt að sekta fyr­ir­tæki sem ekki skila þeim upp­lýs­ingum til Fiski­stofu sem þeim ber að veita um 30 þús­und krónur á dag. Sam­an­lagðar sektir í hverju máli verða þó ekki hærri en 1,5 millj­ónir króna, sem jafn­gildir 50 dag­sekt­ar­dög­um.

Fiski­stofa gegni mik­il­vægu eft­ir­lits­hlut­verki

Sam­keppn­is­eft­ir­litið minnir á það í umsögn sinni að Fiski­stofa gegni mik­il­vægu hlut­verki við fram­kvæmd reglna um hámarks­afla­hlut­deild­ir, og að liður í eft­ir­liti með þessu er sé að rann­saka og taka afstöðu til þess hverjir telj­ist til tengdra aðila og fari með yfir­ráð í því sam­bandi. Starf Fiski­stofu hafi því mikla þýð­ingu í eft­ir­liti með stjórn­un­ar- og eigna­tengslum í sjáv­ar­út­vegi.

„Við eft­ir­lit af þessu tagi er mik­il­vægt að eft­ir­lits­að­il­inn búi yfir full­nægj­andi úrræðum til þess að knýja á um t.d. afhend­ingu gagna og upp­lýs­inga. Ef úrræði af þessu tagi eru ekki afger­andi og skýr er hætt við því að eft­ir­litið skili ekki árangri og mark­mið hlut­að­eig­anda laga nái ekki fram að ganga,“ segir í umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Nauð­syn­legt að hægt sé að sekta í hlut­falli við stærð

Sam­keppn­is­eft­ir­litið bendir á það að í frum­varpi fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra frá því í fyrra, þar sem sams konar breyt­ingar voru lagðar til og nú eru settir fram í frum­varpi mat­væla­ráð­herra, hafi sér­stak­lega verið vísað til sekt­ar­úr­ræðis Fjár­mála­eft­ir­lits­ins í lögum um opin­bert eft­ir­lit með fjár­mála­starf­semi.

Auglýsing

Það sekt­ar­úr­ræði er þó af öðrum toga en það sem lagt er til að Fiski­stofa fái. Fjár­mála­eft­ir­litið hefur heim­ild til þess að leggja á dag­sektir sem geta verið á bil­inu 10 þús­und til 1 milljón króna á dag, auk þess sem sér­stak­lega er tekið fram að við ákvörðun fjár­hæð­ar­innar sé heim­ilt að taka til­lit til fjár­hags­legs styrks þess aðila sem sekt­ina á að fá.

„Að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er nauð­syn­legt að líta til þessa ef tryggja á að dag­sekt­ar­úr­ræði Fiski­stofu tryggi til­hlýði­legar efndir á fyr­ir­mælum stofn­un­ar­inn­ar,“ segir í umsögn stofn­un­ar­inn­ar.

Óal­gengt að dag­sekt­ar­heim­ildir séu svo lágar

Því er einnig bætt við að eftir því sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið kom­ist næst sé „óal­gengt að eft­ir­lits­stofnun hafi til umráða svo lága dag­sekt­ar­fjár­hæð“ sem þær 30 þús­und krónur sem lagðar eru til í frum­varpi ráð­herra.

„Svo virð­ist sem algengt sé að heim­ild til álagn­ingar dag­sekta sé ann­ars vegar bundin ákveð­inni lág­marks­fjár­hæð og hins vegar hámarks­fjár­hæð og virð­ist vera algengt að slík hámarks­fjár­hæð sé 500 þús. kr. til 1 milljón kr. Þá eru jafn­framt dæmi um að ekki sé kveðið á um til­tekið lág­mark eða hámark heldur við­kom­andi eft­ir­lits­stofnun falið að ákvarða við­eig­andi sekt­ar­fjár­hæð í hvert og eitt sinn, sbr. t.d. 38. gr. sam­keppn­islaga,“ segir í umsögn stofn­un­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent