Níu af hverjum tíu breytingartillögum ungra sjálfstæðismanna hlutu brautargengi

Tillögurnar fólu meðal annars í sér aðskilnað ríkis og kirkju og afnám styrkja til landbúnaðarkerfisins.

landsfundur
Auglýsing

Alls hlutu 89 pró­sent til­lagna ungra sjálf­stæð­is­manna braut­ar­gengi í mál­efna­nefndum á lands­fundi flokks­ins og munu því verða að­al­til­lögur nefnd­anna þegar kosið verður um þær á morg­un. Ungir sjálf­stæð­is­menn sendu í gær frá sér lista með­ um 80 breyt­ing­ar­til­lögum á álykt­un­ar­drögum sem mál­efnda­nefndir flokks­ins höfð­u út­búið í aðdrag­anda lands­fund­ar, sem nú stendur yfir. Auk þess fjöl­mennt­u ung­liðar á fund­inn til að styðja við til­lög­urn­ar. Alls var búist við um 300 ungum ein­stak­lingum og að met­þátt­taka yrðu á meðal ungs fólks.

Í til­kynn­ingu frá­ ­sem ungir sjálf­stæð­is­menn sendu frá sér í gær sagði að fjöld­inn end­ur­spegl­að­i um­fang „þeirra breyt­inga sem ungir sjálf­stæð­is­menn telja nauð­syn­legar til þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verði aftur að raun­hæfum val­kosti fyrir ungt fólk“.

Auglýsing


89 pró­sent til­lagna hlutu braut­ar­gengi

Til­lög­urnar sem ungu flokks­menn­irnir lögðu fram voru af ýmsum toga. Þeir lögðu til dæmis til að ­sýslu­menn taki alfarið yfir hjóna­vígsl­ur, að Rík­is­út­varpið verði lagt nið­ur, að ­kosn­inga­aldur verði lækk­aður í 16 ár og að sér­stök áhersla verði lög á mál­efn­i trans- og inter­sex­fólks. Auk þess köll­uðu þeir eftir breyttum áherslum í hús­næð­is­málum og telja að fram­tíð­ar­lausn í gjald­miðla­málum felist í öðrum gjald­miðli en krón­unni.

Í nýrri til­kynn­ingu, sem send var í dag, greina full­trúar ungra sjálf­stæð­is­manna frá­ því að 89 pró­sent til­lagna þeirra hafi hlotið braut­ar­gengi í nefndum og mun­u því verða aðal­til­lögur nefnd­anna fyrir fund­inum á morg­un.

Til­lögur ungra fólu meðal ann­ars í sér­ að­skilnað ríkis og kirkju, afnám refsi­stefnu í fíkni­efna­málum og litið verði á fíkn sem heil­brigð­is­mál ekki lög­gæslu­vanda, lægri kosn­inga­ald­ur, bætt skattaum­hverfi fyrir nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki, stað­göngu­mæðr­un, lög­fest­ingu NPA, ­net­frelsi, að losa land­bún­að­inn við fjár­stuðn­ing rík­is­ins, afnám lág­marks­út­svar­s, að tekið sé til gagnerrar end­ur­skoð­unar hvernig tekið er á kyn­ferð­is­brota­mál­u­m og að ekki ætti að leggja almannafé í stór­iðju sem ekki skilar arð­semi fyrr en eftir langan tíma. Fjöldi ann­arra mála ungra sjálf­stæð­is­manna fóru í gegn.

Þá fengu ungir sjálf­stæð­is­menn sam­þykkt ýmsar úrbætur í mál­efnum hinseg­ins ­fólks. Þar má nefna að blóð­gjafar verði metnir á for­sendum heilsu­fars óháð kyn­hneigð, mann­rétt­indi trans og inter­sex fólks, jöfn rétt­indi sam­kyn­heigðra ­for­eldra og að ekki yrði talað um konur og karla þar sem það úti­lokar hið ­þriðja kyn“. 

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur aldrei mælst með minna fylgi í aðdrag­anda lands­fundar en hann gerir nú, en sam­kvæmt síð­ustu könnun er fylgi flokks­ins 21,4 pró­sent.  Í könnun sem MMR gerði í lok maí  komi í ljós að 12,5 pró­sent fólks á aldr­inum 18 til 29 ára studdi flokk­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None