Notendur Spotify 75 milljónir: Hörð samkeppni framundan

9952748465_fbe9a7672f_z.jpg
Auglýsing

Sænska tón­list­ar­veitan Spotify opin­ber­aði í dag upp­lýs­ingar um fjölda not­enda þjón­ust­unn­ar. Þeir eru orðnir 75 millj­ónir tals­ins og hefur fjölgað um 15 millj­ónir frá því fyr­ir­tækið til­kynnti síð­ast um not­enda­fjölda. Það var í jan­úar á þessu ári. Af 75 millj­ónum not­enda greiða um 20 millj­ónir mán­að­ar­legt gjald. Not­endur geta valið um greiða mán­að­ar­lega tíu doll­ara gjald gegn því að losna við aug­lýs­ingar á milli laga.

Vöxtur Spotify hefur verið hrað­ur. Í lok maí 2014 voru virkir not­endur 40 millj­ónir tals­ins og þar af greiddu tíu millj­ónir not­enda fyrir þjón­ust­una. Fjöldi þeirra sem greiða mán­að­ar­lega hefur í dag meira en tvö­faldast, að því er fyr­ir­tækið greinir frá á vef­svæði sínu í dag. Fjöld­inn jafn­gildir því að einn nýr not­andi skráir sig á Spotify á þriggja sek­úndna fresti að með­al­tali.

Auglýsing


Spotify greinir einnig frá því að um 3 millj­arðar doll­ara hafi á síð­ustu fimm árum verið greiddir í höf­und­ar­laun. Það eru nærri 400 millj­arðar króna miðað við gengi krón­unnar í dag.

Þús­und millj­arða virði

Erlendir fjöl­miðl­ar, frétta­stofa Bloomberg þeirra á meðal, hafa í dag greint frá nýju verð­mati á Spoti­fy. Sænska sím­fyr­ir­tækið Teli­a­Sonera eign­að­ist í dag 1,4 pró­senta hlut í Spotify og greiddi fyrir hlut­inn um 115 millj­ónir doll­ara. Sam­kvæmt þessum við­skiptum er virði Spotify nú um 8 millj­arðar Banda­ríkja­doll­ar­ar, eða jafn­virði ríf­lega þús­und millj­arða króna.



Spotify vinnur nú að kappi við að fjölga not­endum og safna nýju hluta­fé, áður en ný  tón­list­ar­veita App­le, sem kall­ast ein­fald­lega Apple Music, verður opnuð fyrir not­end­um. Báðar tón­list­ar­veit­urnar veita aðgang að meira en 30 millj­ónum laga fyrir tæpa tíu doll­ara á mán­uði. Þjón­usta Apple fer í loftið 30. júní næst­kom­andi og er mesta sam­keppni sem Spotify hefur staðið frammi fyrir á þessum mark­aði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None