Nýtt veðurtungl sendi myndir af jörðinni

jordin_vedurtungl.jpg
Auglýsing

Fyrsta myndin úr nýju veð­ur­tungli evr­ópsku geim­ferða­stofn­un­ar­inn­ar, ESA, og Veð­ur­tungla­stofn­unar Evr­ópu, EUMETSAT, hefur borist til jarðar og hún sýnir sum­ar­skrúða Evr­ópu og Afr­íku í allri sinni dýrð. Veð­ur­tunglið er nýjasta við­bótin í veð­ur­tungla­net EUMETSAT ­sem Veð­ur­stofa Íslands hefur aðgang að.

Myndin var birt á vef ESA í gær, þriðju­dag, ásamt til­kynn­ingu um að MSG-4 gervi­tunglið væri nú virkt og komið á spor­braut um jörðu eftir að hafa verið skotið til him­ins frá Frönsku Gvæj­ana í Suð­ur­-Am­er­íku.

Þegar MSG-4 er búið að virkja sig að fullu verður tunglið end­ur­nefnt Met­eosat-11 og verður í við­bragðs­stöðu bili ein­hver af evr­ópsku veð­ur­tungl­unum sem nú sjá veð­ur­fræð­ingum fyrir gögn­um. Geim­ferð­ar­stofn­unin er ávalt við­búin því að veð­ur­tunglin bili og hefur því eitt í dvala til þess að grípa inni, bjáti eitt­hvað á.

Auglýsing

Eins og stendur fylgj­ast fjögur veð­ur­tungl á vegum EUMETSAT með jörð­inni og senda veð­ur­fræð­ingum myndir af Evr­ópu, Afr­íku og Ind­lands- og Atl­ants­hafi á 15 mín­útna fresti. Mynd­irnar nota veð­ur­fræð­ing­arnir svo til að spá fyrir um veðr­ið. Hér að neðan má sjá veðra­kerfin þró­ast yfir Evr­ópu í apríl síð­ast­liðn­um.

https://www.youtu­be.com/watch?v=K5qT­gJ-IldM

Á vef Mas­hable er útskýrt hvernig þessi veð­ur­tungl virka. Tunglin halda stöðu sinni yfir fyr­ir­fram ákveðnum punkti á jörð­inni og gera veð­ur­fræð­ingum kleift að fylgj­ast með veðra­kerfum í loft­hjúpi jarðar þró­ast.

Veð­ur­stofa Íslands varð með­limur í EUMETSAT í jan­úar 2014 eftir að Sig­urður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, skrif­aði undir sam­komu­lag þess efn­is. Íslend­ingar leggja til um 0,10 pró­sent fjár­magns­ins til rekst­urs veð­ur­tungl­anna, eða næst minnst. Aðeins er fram­lag Eista minna. Þjóð­verjar, Bretar og Frakkar leggja til mest eða sam­an­lagt helm­ing fjár­magns­ins.

Jörðin séð úr víðlinsu MSG-4 á dögunum. Sjáið hvernig Ísland er sveipað skýjum. Jörðin séð úr víðlinsu MSG-4 á dög­un­um. Sjáið hvernig Ísland er sveipað skýj­u­m.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None