Óboðlegt að láta eins og forseti Alþingis hafi „húsbóndavald yfir ríkisendurskoðanda“

„Hér hefur verið sett hættulegt fordæmi og bara ég mótmæli þessu,“ sagði þingmaður Samfylkingar á þingi í dag þegar hann ræddi skipan ráðuneytisstjóra í nýju menningar- og viðskiptaráðuneyti Lilju Alfreðsdóttur.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gerði skipan rík­is­end­ur­skoð­anda í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra nýs menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráðu­­neytis að umtals­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að Skúli Egg­ert Þórð­­ar­­son, sem verið hefur rík­­is­end­­ur­­skoð­andi frá árinu 2018, hefði verið skip­aður ráðu­­neyt­is­­stjóri nýs ráðu­neytis Lilju Alfreðs­dóttur menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra.

Þing­mað­ur­inn sagði í ræðu sinni að nýlega hefði þing­mönnum verið til­kynnt að for­seti Alþingis hefði fall­ist á beiðni menn­ing­ar­ráð­herra um að rík­is­end­ur­skoð­andi yrði fluttur yfir í nýtt ráðu­neyti og skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri.

Auglýsing

Þetta hefði verið gert, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef Alþing­is, á grund­velli 36. greinar laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins, en sam­kvæmt ákvæð­inu „getur stjórn­vald, sem skipað hefur mann í emb­ætti, sam­þykkt að hann flytj­ist í annað emb­ætti er lýtur öðru stjórn­valdi, enda óski það stjórn­vald eftir því“.

„Ef við skoðum nú aðeins grein­ar­gerð­ina frá því að starfs­manna­lög voru sett þá kemur þar skýrt fram að ákvæðið snýst um heim­ildir ráð­herra – að heim­ilt sé að flytja mann úr einu emb­ætti í annað þótt emb­ættin heyri undir tvo ráð­herra. Tvo ráð­herra. Þetta skiptir máli.

Því við skulum hafa það alveg á hreinu að rík­is­end­ur­skoðun er ekki hluti af fram­kvæmda­vald­inu og rík­is­end­ur­skoð­andi heyrir ekki undir neinn ráð­herra – þetta er sjálf­stæð eft­ir­lits­stofnun sem starfar á vegum Alþingis rétt eins og umboðs­maður Alþing­is,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Skað­legt að beita lög­unum með þessum hætti

Jóhann Páll hélt því fram að með „þessum gjörn­ingi“ væri verið að mis­beita 36. grein starfs­manna­laga. „Það myndi engum detta það í hug að ráð­herra gæti til dæmis teygt sig yfir á svið dóms­valds­ins og sótt sér þangað dóm­ara og fært yfir í ráðu­neytið sitt, en lögin gera heldur ekki ráð fyrir að ráð­herra teygi sig yfir á svið lög­gjaf­ar­valds­ins og eft­ir­lits­stofn­ana þess og sæki sér þangað emb­ætt­is­mann.“

Hann sagði enn fremur að það væri skað­legt að beita lög­unum með þessum hætti og óboð­legt að láta eins og for­seti Alþingis hefði eitt­hvert hús­bónda­vald yfir rík­is­end­ur­skoð­anda, að for­seti „féllist á“ flutn­ing hans yfir til ráðu­neyt­is.

„Rík­is­end­ur­skoð­andi er sjálf­stæður í sínum störf­um, hann er trún­að­ar­maður Alþingis – alls Alþingis – hann er kos­inn af Alþingi og honum verður ekki vikið úr starfi nema með sam­þykki Alþing­is.

Hér hefur verið sett hættu­legt for­dæmi og bara ég mót­mæli þessu. Þetta stríðir gegn þrí­skipt­ingu rík­is­valds, þetta er virð­ing­ar­leysi gagn­vart Alþingi og gagn­vart þeim eft­ir­lits­stofn­unum sem starfa á vegum Alþing­is. Og við hér í þessum sal getum ekki setið þegj­andi undir þessu. Við getum það ekki. Við verðum að taka þetta til skoð­un­ar,“ sagði hann að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent