Óljóst hvenær og hvernig loforð um ókeypis strætó fyrir grunnskólabörn verður uppfyllt

Nýi meirihlutinn í Reykjavíkurborg lofaði því að hafa það á meðal sinna fyrstu verka að gera strætisvagnaferðir grunnskólabarna ókeypis. Ekki liggur fyrir hvað það kostar Strætó, né hvort nágrannasveitarfélögin ætla að taka þátt í því.

Alexandra Briem borgarfulltrúi Pírata og fulltrúi borgarinnar í stjórn Strætó.
Alexandra Briem borgarfulltrúi Pírata og fulltrúi borgarinnar í stjórn Strætó.
Auglýsing

Í meiri­hluta­sátt­mála Sam­fylk­ing­ar, Fram­sókn­ar, Pírata og Við­reisn­ar, sem kynntur var í byrjun júní, voru til­tekin 18 verk­efni, sem nýr meiri­hluti í Reykja­vík­ur­borg sagð­ist ætla að setja í for­gang í upp­hafi nýs kjör­tíma­bils.

Eitt for­gangs­mál­anna var að hætta að rukka börn á grunn­skóla fyrir ferðir með stræt­is­vögn­um. „Við ætlum að hafa ókeypis í Strætó fyrir börn á grunn­skóla­aldri,“ sagði meiri­hlut­inn í kafl­anum Fyrstu breyt­ingar í sam­starfs­sátt­mál­anum, sem alls taldi 32 síð­ur.

Nú eru skólar hafnir á ný eftir sum­ar­leyfi og margir reyk­vískir for­eldrar hafa eflaust velt því fyrir sér hvort þeir þyrftu að fjár­festa í strætókortum fyrir grunn­skóla­börn sín, eða hvort verið væri að leggja loka­hönd á útfærslu þeirra fyr­ir­heita sem gefin voru í meiri­hluta­sátt­mál­anum fyrir tæpum þremur mán­uð­um.

Auglýsing

Sam­kvæmt Alexöndru Briem, borg­ar­full­trúa Pírata og full­trúa borg­ar­innar í stjórn Strætó, er ekki enn ljóst hvernig eða hvenær lof­orð meiri­hlut­ans um að fella niður far­gjöld grunn­skóla­barna verður upp­fyllt.

Hún segir þó að borg­ar­yf­ir­völd í Reykja­vík ætli sér að láta gefin fyr­ir­heit verða að veru­leika, jafn­vel þó að svo færi að önnur sveit­ar­fé­lög höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins myndu ekki vilja feta þennan veg.

„Í raun­inni er það þannig að við eigum eftir að lenda því í stjórn­inni [hjá Strætó] hvernig við ætlum að taka á þessu. Það liggur fyrir að þetta myndi kosta eitt­hvað, og þá þurfum við annað hvort að sam­mæl­ast um að gera það á Strætó-„­leveli“ og öll sveit­ar­fé­lögin að sam­þykkja að leggja til aukið fjár­magn fyrir því. Ef það næst ekki sam­staða um það þá þurfum við að skoða að gera þetta bara Reykja­víku­megin og það myndi þá bara gilda fyrir reyk­vísk börn,“ segir Alex­andra í sam­tali við Kjarn­ann.

Kostn­að­ar­mat liggur fyrir um miðjan sept­em­ber

Spurð um kostn­að, tap­aðar far­gjalda­tekjur Strætó af því að veita öllum börnum á grunn­skóla­aldri frítt í strætó, seg­ist Alex­andra ekki hafa þær tölur á reiðum hönd­um. Sam­kvæmt svari sem Jóhannes S. Rún­ars­son fram­kvæmda­stjóri Strætó veitti Kjarn­anum verður þetta mál tekið til umræðu á stjórn­ar­fundi Strætó þann 16. sept­em­ber og þá verður búið að kostn­að­ar­meta til­ög­una.

Árskort í Strætó fyrir börn á aldr­inum 12-17 ára kostar í dag 40 þús­und krónur hjá Strætó. Spurð út í mögu­lega end­ur­greiðslu slíkra korta, ef svo færi að ein­ungis vikur eða mán­uðir væru í að ókeypis yrði í strætó fyrir grunn­skóla­börn, segir Alex­andra að henni þætti per­sónu­lega sann­gjarn­ast ef árskort yrðu end­ur­greidd hlut­falls­lega miðað við þann tíma sem eftir er af árskort­inu.

„En það er ekki komin nein lend­ing á þetta sam­tal,“ segir Alex­andra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent