Óskar eftir opnum fundi til að ræða úrskurð NEL

Þingmaður Pírata telur að kanna þurfi hvort úrskurður NEL í Ásmundarsalar-málinu sé í samræmi við lögreglulög, lög um persónuvernd og verklagsreglur lögreglu um notkun búkmyndavéla. Hefur hann óskað eftir opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pirata.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pirata.
Auglýsing

Jón Þór Ólafs­son, for­maður stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis og þing­maður Pírata, hefur lagt til að nefndin taki fyrir nýlegan úrskurð nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu (NEL). Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Píröt­um.

Kanna þurfi hvort úrskurð­ur­inn, sem lýtur að sam­tali tveggja lög­reglu­manna á Þor­láks­messu í Ásmund­ar­sal, stand­ist lög og regl­ur.

Jón Þór telur frétta­flutn­ing af mál­inu gefa fullt til­efni til þess að stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd taki úrskurð NEL til umfjöll­unar á opnum fundi.

Auglýsing

Tveggja manna tal sem ekki gæti haft áhrif á til­kynn­ing­una

Rökin sem þing­mað­ur­inn gefur fyrir fundi eru þau að NEL telji sam­tal lög­reglu­mann­anna ámæl­is­vert en „ekki virð­ist hafa komið fram í fjöl­miðlum nákvæm­lega hvað það er við orð lög­reglu­manna sem sé ámæl­is­vert. Ljóst er þó að þarna fer fram tveggja manna tal sem getur ekki haft áhrif á það mál sem upp­runa­lega var til­kynnt um, þ.e. frétta­til­kynn­ingu frá lög­reglu dag­inn eft­ir.“

Í öðru lagi bendir Jón Þór á að komið hafi fram í fjöl­miðlum að hvor­ugur lög­reglu­mann­anna hafi komið nokkuð nálægt því að semja frétta­til­kynn­ing­una sem send var út að morgni aðfanga­dags og þetta sam­tal því ekki hluti af fram­kvæmd, starfs­að­ferðum eða verk­lagi lög­reglu.

Í þriðja lagi segir hann að sam­tal lög­reglu­mann­anna hafi farið fram í ein­rúmi þar sem almenn­ingur heyrir ekki til þeirra og því ljóst að ekki hafi verið kvartað til NEL vegna sam­tals­ins. Það komi ein­ungis í ljós þegar mynd­bands­upp­tökur eru skoð­aðar síð­ar.

Í fjórða lagi segir þing­mað­ur­inn að NEL virð­ist ekki gera grein­ar­mun á því að lög­reglu­menn hafi skoð­anir og að þeir gæti fyllstu hlut­lægni í störfum sín­um, eins og kveðið er á um í 2. mgr. 13. gr. lög­reglu­laga. Verði þó með engu móti séð að þetta einka­sam­tal hafi haft áhrif á vett­vangi, því ekki var kvartað yfir fram­komu þess­ara tveggja lög­reglu­manna.

Vill að hægt sé að vitna í orð gesta fund­ar­ins

„Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd hefur eft­ir­lits­skyldu með fram­kvæmda­vald­inu og sjálf­stæðum stjórn­sýslu­nefndum eins og NEL, sam­kvæmt nýsam­þykktum lögum um þing­sköp Alþing­is. Það er mat Jóns Þórs að kanna þurfi hvort úrskurður NEL sé í sam­ræmi við lög­reglu­lög, lög um per­sónu­vernd og verk­lags­reglur lög­reglu um notkun búk­mynda­véla.

Að sama skapi telur Jón Þór mik­il­vægt að fundur stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar sé opinn fjöl­miðlum svo hægt sé að vitna í orð gesta, sem eins og reynslan hefur sýnt okkur að sé for­senda þessa að eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis virki,“ segir í til­kynn­ingu Pírata.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent