Reykjavíkurborg hlynnt því að 30 kílómetra hámarkshraði verði nýja normið

Reykjavíkurborg hefur skilað inn jákvæðri umsögn um frumvarp sem felur í sér að almenn hraðamörk í þéttbýli lækki úr 50 km/klst. í 30 km/klst. Borgin bendir á að núverandi hraðamörk séu ekki í samræmi við rannsóknir eða þróun síðustu áratuga.

Borgaryfirvöld segja núverandi almenn hraðamörk, 50 km/klst., leiði til þess að hraðamörk séu oft og tíðum of há innan þéttbýlis.
Borgaryfirvöld segja núverandi almenn hraðamörk, 50 km/klst., leiði til þess að hraðamörk séu oft og tíðum of há innan þéttbýlis.
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg styður að almenn hraða­mörk í þétt­býli verði færð niður í 30 kíló­metra á klukku­stund, nema aðstæður mæli með hærri hraða. Þetta kemur fram í umsögn borg­ar­innar við frum­varp Andr­ésar Inga Jóns­sonar þing­manns Pírata til breyt­inga á umferða­lög­um.

Frum­varpið felur í sér að almenn hraða­mörk innan þétt­býlis verði færð úr 50 kíló­metra hraða niður í 30 kíló­metra hraða á klukku­stund. Reykja­vík­ur­borg telur að þessi breyt­ing falli „vel að þeim mark­miðum og áherslum sem Reykja­vík­ur­borg hefur sett sér í umferð­ar­ör­ygg­is­mál­um, umhverf­is­málum og notkun mis­mun­andi far­ar­máta.“

„Ekki er ljóst hvenær eða hvers vegna valið var að setja almenn hraða­mörk sem 50 km/klst., en þannig hafa þau verið a.m.k. frá árinu 1968. Þau hraða­mörk taka ekki mið af kunn­áttu, rann­sókn­um, og þróun sem hefur átt sér stað síð­ustu ára­tugi m.t.t. fjölda og alvar­leika umferð­ar­ó­happa innan borga,“ segir í umsögn borg­ar­innar sem send hefur verið til Alþingis og und­ir­rituð er af Þor­steini R. Her­manns­syni sam­göngu­stjóra.

Í umsögn­inni segir að almenn hraða­mörk upp á 50 km/klst leiði til þess að hraða­mörk séu oft og tíðum of há innan þétt­býlis og sam­þykki þurfi og aug­lýsa sér­stak­lega að lækka hraða­mörkin út frá umferð­ar­ör­ygg­is­sjón­ar­miðum á stórum hluta gatna­kerf­is­ins.

Yrði frum­varp Andr­ésar Inga að lögum myndi þetta í reynd snú­ast við og aug­lýsa þyrfti og sam­þykkja sér­stak­lega umferð­ar­hraða yfir 30 kíló­metrum á klukku­stund innan þétt­býl­is. Í umsögn borg­ar­innar segir að um 60 pró­sent af gatna­kerf­inu sé nú með 30 kíló­metra hámarks­hraða eða lægri og geri megi ráð fyrir að það hlut­fall hækki til fram­tíð­ar.

Auglýsing

„Af­leið­ingar umferð­ar­ó­happs þar sem ekið er á gang­andi eða hjólandi vega­far­enda á 50 km/klst. eru mun meiri en ef hrað­inn er nærri 30 km/klst. Æski­legt má telja að almennur grunn­hraði sé ákvarð­aður út frá því hvaða hraða veg­far­endur á ferð um meiri­hluta gatna­kerf­is­ins þola án þess að eiga á hættu að slasast alvar­lega, en að velja megi hærri hraða þar sem það er talið ásætt­an­legt út frá umferð­ar­ör­ygg­i,“ segir í umsögn borg­ar­inn­ar.

Þar segir einnig að laga­breyt­ing­ar­til­lagan falli vel að mark­miðum á lands­vísu sem finna má í umferð­ar­ör­ygg­is­á­ætlun stjórn­valda 2020-2034, sér­stak­lega und­ir­mark­miðum sem miði að öryggi barna í umferð­inni og öryggi óvarðra veg­far­enda.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent