Ríkisstjórnin rígheldur og rúmlega það

Samkvæmt þeim atkvæðum sem talin höfðu verið um kl. 1 að kvöldi kjördags gæti ríkisstjórnin fengið 40 þingmenn, jafnvel fleiri. Útlit er fyrir að færri flokkar verði á þingi en búist hafði verið við.

Leiðtogaumræður 24. september 2021
Auglýsing

Rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks hefur afar rúman þing­meiri­hluta, jafn­vel yfir 40 þing­menn, sam­kvæmt þeim atkvæðum sem talin höfðu verið um kl. 1 í nótt.

Útlit er fyrir að það verði ekki níu flokkar á þingi, heldur mögu­lega átta eða sjö, en Mið­flokk­ur­inn og Sós­í­alista­flokk­ur­inn eru báðir afar tæpir á að ná inn þing­manni og voru ekki yfir 5 pró­senta mark­inu þegar klukkan var rétt rúm­lega 1. Þá var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins þó inni sem kjör­dæma­kjör­inn þing­maður í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Ef þetta verður nið­ur­staðan yrði það til þess að stærri flokk­arnir á þingi fengju fleiri þing­menn og tals­verður hluti atkvæða félli niður dauð, eða hátt í 10 pró­sent.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sig­ur­veg­ari en stjórn­ar­flokk­arnir geta allir vel við unað

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir mikið við sig – eða allt að fimm þing­mönnum eftir því sem jöfn­un­ar­þing­sætin sveifl­ast. Óhætt er að kalla flokk­inn sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna, miðað við fyrstu töl­ur, en hann hefur fengið yfir 16 pró­sent þeirra atkvæða sem talin hafa verið á lands­vísu.

Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokk­ur­inn með rúm 24 pró­sent þeirra atkvæða sem talin hafa ver­ið. Það er nokkuð hærra en skoð­ana­kann­anir hafa sýnt að und­an­förnu. Flokk­ur­inn stendur í stað hvað þing­manna­fjölda varðar sam­kvæmt þeim tölum sem hafa komið fram. Flokk­ur­inn er lít­il­lega undir kjör­fylgi sínu árið 2017.

Vinstri græn virð­ast vera að tapa um tveimur pró­sentu­stigum og tveimur þing­mönnum frá síð­ustu kosn­ingum – sem þó myndi ekki minnka þing­flokk flokks­ins neitt, þar sem tveir þing­menn VG gengu til liðs við aðra flokka á kjör­tíma­bil­inu. Flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur virð­ist þó vera að fá betri kosn­ingu en skoð­ana­kann­anir gerðu ráð fyr­ir, eða yfir 14 pró­sent.

Flokkur fólks­ins sterkur en miðju­flokk­arnir lægri en kann­anir sýndu

Sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna mætti sömu­leiðis kalla Flokk fólks­ins, sem virð­ist ætla að bæta við sig tveimur þing­mönnum frá kosn­ing­unum árið 2017, fá sex menn kjörna og slaga nærri 9 pró­senta fylgi.

Ef að þetta verða nið­ur­stöður kosn­ing­anna yrði það veru­lega á skjön við það sem skoð­ana­kann­anir hafa sýnt að und­an­förnu, en Sam­fylk­ing­in, Píratar og Við­reisn virð­ast vera að fá all­nokkuð lak­ari kosn­ingu en jafn­vel mjög nýlegar kann­anir höfðu sýnt.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent