Ritstjóri Kjarnans valinn Startup blaðamaður ársins á Íslandi á Nordic Startup Awards

IMG_0562-1.jpg
Auglýsing

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarn­ans, var í dag val­inn Startup blaða­maður árs­ins á Íslandi á íslensku úrslit­unum á Nor­dic Startup Awards. Hann mun keppa um að verða Startup Journa­list of the Year á Norð­ur­lönd­unum í aðal­úr­slitum verð­laun­anna sem fara fram í Helsinki 26. mars næst­kom­andi.

Aðrir sem hlutu verð­laun í íslensku úrslitum verð­laun­anna eru Georg Lúð­víks­son frá Meniga (Founder of the Year), Krist­ján Ingi Mika­els­son (Developer Her­o), Bókun (Startup of the Year), Startup Reykja­vík (Best Accel­er­ator Program), Modio (Best Boot­strapp­ed), Sig­urður Arn­ljóts­son (Best Prof­fes­ional Investor), Mekano ehf. (Best Newcomer) og 27 Nýsköp­un­ar­hús-­Borg­ar­tún 27 (Best Office Space). Auk þess hlaut Edda Her­manns­dótt­ir, aðstoð­ar­rit­stjóri Við­skipta­verð­laun, sér­stök Peop­les Choice verð­laun fyrir að hafa fengið flest atkvæði í net­kosn­ingu um sig­ur­vegar­anna.

Allir sig­ur­veg­ar­arnir í íslensku úrslit­unum munu keppa um sigur í aðal­keppn­inni milli allra Norð­ur­land­anna í Helsinki í lok þessa mán­að­ar.

Auglýsing

Umfangs­mikil og víð­tæk umfjöllun um nýsköpun og frum­kvöðla



Kjarn­inn hefur frá stofnun sinni, fyrir tæpum tveimur árum, lagt mikla áherslu á umfjöllun um frum­kvöðla­starf­semi og nýsköp­un. Starfs­menn hans hafa tekið fjöld­ann allan af við­tölum við, og skrifað fréttir um, íslensk fyr­ir­tæki sem eru að slíta barnskónum eða í vaxta­ferli. Sér­stak­lega þau sem eru að gera eitt­hvað alveg nýtt. Auk þess hafa þeir skrifað ótal grein­ingar á því umhverfi sem slík fyr­ir­tæki búa við hér­lendis og þá mögu­leika sem þau hafa til að vaxa og dafna.

Þá hefur verið gerður urm­ull hlað­varpa þar sem áhersla er á nýsköp­un. Hlusta má á nokkur þeirra hér, hér, hér og hér.

Kjarn­inn fjall­aði einnig ítar­lega um Startup Reykja­vík hrað­al­inn á síð­asta ári. Þar gerði hann fjöl­mörg stutt mynd­bönd um verk­efni sem tóku þátt í hraðl­in­um. Þau má sjá hér.

Kjarn­inn sýndi auk þess beint frá nýsköp­un­ar­há­degi í Innovation House þar ýmsir áhuga­verðir frum­mæl­endur komu fram.

Fyrr á þessu ári var Kjarn­inn sam­starfs­að­ili Klak Innovit í að halda frum­kvöðla­keppn­ina Gul­legg­ið, sem þá var haldið í átt­unda sinn. Kjarn­inn stóð einnig að Nexpó verð­launa­há­tíð­inni ásamt Klak Innovit, Sím­on.is og Nýherja.

Kjarn­inn hefur auk þess átt náið sam­starf við hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­una Karol­ina Fund og birt umfjall­anir um ýmis spenn­andi verk­efni sem hafa sóst eftir því að ná í fjár­magn í gegnum þá síðu.

Verð­launin sem rit­stjóri Kjarn­ans hlaut í dag fyrir hönd mið­ils­ins eru því mikil við­ur­kenn­ing fyrir það mikla starf sem öll rit­stjórn Kjarn­ans hefur unnið við að vekja athygli á og fjalla um nýsköpun og frum­kvöðla­starf­semi frá stofnun hans síð­sum­ars 2013.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None