Sameinað sveitarfélag yrði „sterkari rödd frá sunnanverðum Vestfjörðum“

Óformlegar viðræður um sameiningu Tálknafjarðarhrepps og Vesturbyggðar eru hafnar. Samgöngubætur eru eitt helsta baráttumál beggja sveitarfélaga í dag „og stærra sveitarfélag og sterkara,“ segir Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð.

Sveitar- og bæjarfulltrúar og sveitar- og bæjarstjórar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps fóru í vettvangsferð ásamt fulltrúum KPMG í haust.
Sveitar- og bæjarfulltrúar og sveitar- og bæjarstjórar Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps fóru í vettvangsferð ásamt fulltrúum KPMG í haust.
Auglýsing

„Það þarf að passa sig á því að horfa hlut­laust á verk­efn­ið, draga fram stað­reyndir en ekki til­finn­ingar þeirra sem vinna að verk­efn­inu. Við erum líka að tala um að sam­eina sveit­ar­fé­lögin en ekki sam­eina annað sveit­ar­fé­lagið hinu, sem er mjög mik­il­vægt í umræð­unn­i.“

Þetta segir Þór­dís Sif Sig­urð­ar­dótt­ir, bæj­ar­stjóri Vest­ur­byggð­ar, um þau tíð­indi að óform­legar við­ræður um sam­ein­ingu sé hafnar milli sveit­ar­fé­lags­ins og nágranna­byggð­ar­innar Tálkna­fjarð­ar­hrepps.

Auglýsing

„Auk­inn íbúa­fjöldi er ákveðið tæki­færi, en stærra sveit­ar­fé­lag er sterkara, það yrði sterk­ari rödd frá sunn­an­verðum Vest­fjörð­u­m,“ svarar hún spurð um kosti sam­ein­ing­ar. „Það ætti að nást breið­ari þjón­usta við íbúa og sterk­ari inn­við­ir. Sam­göngu­úr­bætur milli byggða­kjarn­anna mun skipta sköpun fyrir íbúa svæð­is­ins. Enn fremur yrði lögð meiri áhersla á íbúa­lýð­ræði í sveit­ar­fé­lög­unum en hefur verið hingað til, með stofnun heima­stjórna að fyr­ir­mynd Múla­þings.“

Þórdís Sigurðardóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar.

Árið 1994 var kosið um sam­ein­ingu allra sveit­ar­fé­laga á sunn­an­verðum Vest­fjörð­um, þ.e.a.s. Bíldu­dals­hrepps, Tálkna­fjarð­ar­hrepps, Pat­reks­hrepps og Rauða­sands­hrepps. Í atkvæða­greiðslu felldu Tálkn­firð­ingar til­lög­una og úr varð að sam­eina öll sveit­ar­fé­lögin sem tóku þátt í atkvæða­greiðsl­unni að und­an­skildum Tálkna­fjarð­ar­hreppi, í nýtt sveit­ar­fé­lag, Vest­ur­byggð.

Nokkrar þreif­ingar hafa verið um margra ára skeið um frek­ari sam­ein­ingar á Vest­fjörð­um, en á árinu 2021 fóru að skýr­ast ein­hverjar leiðir og m.a. var farið í könnun á hag­kvæmni sam­ein­ingar Tálkna­fjarðar og Vest­ur­byggð­ar.

Í lok síð­asta árs sendi Tálkna­fjarð­ar­hreppur beiðni um óform­legar við­ræður um sam­ein­ingu sveit­ar­fé­laga til allra sveit­ar­fé­lag­anna á Vest­fjörð­um, að und­an­skildum Ísa­fjarð­ar­bæ. Ger­ist þetta eftir að Tálkna­fjarð­ar­hreppur hafn­aði óform­legum sam­ein­inga­við­ræðum við Vest­ur­byggð ein­göngu þar sem vilji var til að kanna hug fleiri sveit­ar­fé­laga til sam­ein­ing­ar, útskýrir Þór­dís.

„Vest­ur­byggð svar­aði beiðni þeirra á þá leið að sveit­ar­fé­lagið væri til­búið til að ræða sam­ein­ing­ar­vilja Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarð­ar­hrepps, hefði Tálkna­fjarð­ar­hreppur áhuga á að taka upp óform­legar við­ræður aðeins við Vest­ur­byggð,“ segir hún. Tálkna­fjarð­ar­hreppur ákvað svo í upp­hafi árs að vísa til­lögu um sam­ein­inga­við­ræður sveit­ar­fé­lag­anna tveggja til ákvörð­unar nýrrar sveit­ar­stjórnar eftir kosn­ing­ar. Ný sveit­ar­stjórn Tálkna­fjarð­ar­hrepps sam­þykkti svo sam­hljóða að taka upp óform­legar við­ræður við bæj­ar­stjórn Vest­ur­byggðar um sam­ein­ingu sveit­ar­fé­lag­anna tveggja. Óform­legar við­ræður um sam­ein­ingar hófust því í haust.

Mikið sam­starf nú þegar

Mjög mikið og gott sam­starf hefur verið und­an­farin á á milli Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarð­ar­hrepps, sam­starf um starfs­fólk, þjón­ustu og nefndir er þegar til stað­ar,“ segir Þór­dís.

Auglýsing

Í fyrra var gerð könnun á hag­kvæmni sam­ein­ingar sveit­ar­fé­lag­anna, ann­ars vegar á vegum Tálkna­fjarð­ar­hrepps og hins vegar Vest­ur­byggð­ar, en í því ferli voru m.a. haldnir íbúa­fund­ir. „Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar er að helstu bar­áttu­málin eru bættar sam­göngur og þar helst jarð­göng milli byggða­kjarna, undir Mikla­dal sem er á milli Pat­reks­fjarðar og Tálkna­fjarðar og undir Hálf­dán sem er milli Tálkna­fjarðar og Bíldu­dals,“ segir Þór­dís. „Með bættum sam­göngum verður til sterkara sveit­ar­fé­lag og auð­veld­ara að ferð­ast innan sama atvinnu­sókn­ar­svæð­is.“

Íbúar hafa loka­orðið

Þór­dís segir að enn sem komið er hafi hugur íbúa aðeins verið kann­aður óform­lega á íbúa­fund­unum í fyrra. En verði ákveðið að fara í form­legar sam­ein­inga­við­ræður verður kosið um sam­ein­ingu sveit­ar­fé­lag­anna.

Sveit­ar­stjórnir beggja sveit­ar­fé­lag­anna þurfa að taka ákvörðun um það ef að óform­legar sam­ein­ing­ar­við­ræður verði að form­legum við­ræð­u­m,“ segir hún. Það gæti t.d. gerst í fram­haldi af til­lögu verk­efna­stjórnar um slíkt. „Verði við­ræð­urnar form­legar mun það alltaf enda með að íbúar kjósi um sam­ein­ing­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent