Samningar SGS og SA í höfn: Kauptaxtar hækka um að lágmarki 35 þúsund

Kauptaxtar hækka frá 1. nóvember í ár um að lágmarki 35.000 krónur á mánuði. Hagvaxtarauka sem átti að koma til greiðslu 1. maí verður flýtt. Samningar hafa náðst milli Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins.

Frá undirritun samninganna í dag.
Frá undirritun samninganna í dag.
Auglýsing

Samn­inga­nefnd Starfs­greina­sam­bands Íslands (SGS) hefur und­ir­ritað nýjan kjara­samn­ing við Sam­tök atvinnu­lífs­ins vegna starfa á hinum almenna vinnu­mark­aði. Sautján af nítján aðild­ar­fé­lögum SGS und­ir­rit­uðu samn­ing­inn í húsa­kynnum rík­is­sátta­semj­ara í dag. Um er að ræða svo­kall­aðan skamm­tíma­samn­ing en gild­is­tími samn­ings­ins er frá 1. nóv­em­ber til 31. jan­úar 2024. „Þess má geta að þetta er í fyrsta sinn sem kjara­samn­ingur á almennum vinnu­mark­aði gildir frá sama tíma og sá eldri rennur út og í því eru fólgin mikil verð­mæti fyrir launa­fólk,“ segir í til­kynn­ingu á vef SGS.

Sam­kvæmt samn­ingn­um, sem enn a eftir að kynna fyrir félags­mönn­um, hækka kaup­taxtar frá 1. nóv­em­ber í ár um að lág­marki 35.000 krón­ur. Að auki felur samn­ing­ur­inn í sér lag­fær­ingu á launa­töfl­unni, sem gerir það að verkum að hækkun getur orðið allt að 52.000 kr. á mán­uði.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði við RÚV að henni heyr­is­t af sam­tölum sínum við for­ystu­menn SGS og SA, að samn­ing­arnir séu mjög metn­að­ar­fullir þótt þeir séu til skamms tíma.

Auglýsing

Merki­legt sé að samn­ingur taki við af samn­ingi sem sé ekki algengt á íslenskum vinnu­mark­að­i. „Við verðum svo bara að sjá hvernig gengur og verðum að vona að nú þegar ísinn hefur verið brot­inn að það finn­ist far­sæl lausn í öðrum kjara­við­ræð­u­m.“

Það skipt­i ­miklu máli að vera kom­inn með þennan samn­ing í dag. „Ég vona að sjálf­sögðu að aðr­ir f­inn­i ­lausnir þó að þær séu til skamms tíma, eðli­lega, ­vegna óvissunnar í efna­hags­mál­u­m.“

VR, Land­sam­band íslenskra versl­un­ar­manna (LÍV) og sam­flot iðn- og tækni­greina að þau hefðu  tekið höndum saman í kjara­við­ræðum sínum við SA. Innan þess ­sam­flots eru um 59 þús­und félags­fólk. 

Bónusar í fisk­vinnslu hækka um 8 pró­sent

Sam­kvæmt samn­ingi SGS og SA hækka laun þeirra sem ekki taka laun eftir kaup­töxt­um, þ.e. eru á mán­að­ar­laun­um, um 33.000 kr. frá 1. nóv­em­ber. Des­em­ber- og orlofs­upp­bætur taka jafn­framt hækk­un­um. Des­em­ber­upp­bót á árinu 2023 verður 103.000 kr. og orlofs­upp­bót verður 56.000 kr. á orlofs­ár­inu sem hefst 1. maí 2023. Kjara­tengdir liðir samn­ings­ins hækka um 5% frá 1. nóv­em­ber og þá hækka bónusar og akkorð í fisk­vinnslu um 8 pró­sent sem mun skila fisk­vinnslu­fólki á bil­inu 6.000-34.000 kr. hækkun á mán­uði.

Hag­vaxt­ar­auka flýtt

Einnig náð­ist sam­komu­lag um flýt­ingu hag­vaxt­ar­auka sem þýðir að hag­vaxt­ar­auk­inn sem átti að koma til greiðslu 1. maí 2023 verður flýtt og verður hann að fullu efndur með hækkun 1. nóv­em­ber. Það mun skila ávinn­ingi sem nemur 78.000 kr. eða tæpum 6.000 kr. á mán­uði og er hann með­tal­inn í áður­nefndum taxta- og mán­aða­launa­hækk­un­um. Jafn­framt var gert sam­komu­lag um að með þess­ari hækkun og flýt­ingu komi ekki til frekara end­ur­mats á hag­vaxt­ar­auka skv. kjara­samn­ingnum frá 2019.

Kjara­samn­ing­ur­inn er fram­leng­ing á Lífs­kjara­samn­ingnum sem gilti frá 2019-2022. Samn­ings­að­ilar eru sam­mála um að samn­ing­ur­inn styðji við kaup­mátt launa auk þess að veita heim­ilum og fyr­ir­tækjum fyr­ir­sjá­an­leika á miklum óvissu­tím­um. Samn­ing­ur­inn geti þannig byggt undir stöð­ug­leika og skapað for­sendur fyrir lang­tíma­samn­ingi.

Nú tekur við kynn­ing og atkvæða­greiðsla um samn­ing­inn meðal félags­manna. Til­kynnt verður um afgreiðslu samn­ings­ins mánu­dag­inn 19. á að liggja fyrir ekki síðar en mánu­dag­inn 19. des­em­ber næst­kom­andi.

Eft­ir­far­andi félög eiga aðild að samn­ingn­um:

AFL Starfs­greina­fé­lag, Aldan stétt­ar­fé­lag, Báran stétt­ar­fé­lag, Dríf­andi stétt­ar­fé­lag, Ein­ing-Iðja, Fram­sýn stétt­ar­fé­lag, Stétt­ar­fé­lagið Sam­staða, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Bol­ung­ar­vík­ur, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Kefla­víkur og nágrennis, Verka­lýðs- og sjó­manna­fé­lag Sand­gerð­is, Verka­lýðs­fé­lag Akra­ness, Verka­lýðs­fé­lag Snæ­fell­inga, Verka­lýðs­fé­lag Suð­ur­lands, Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga, Verka­lýðs­fé­lag Þórs­hafn­ar, Verka­lýðs­fé­lagið Hlíf og Stétt­ar­fé­lag Vest­ur­lands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent