Sanna Magdalena býður fram krafta sína fyrir næstu borgarstjórnarkosningar

Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins ætlar að bjóða sig fram á ný fyrir flokkinn í komandi kosningum. „Ég viðurkenni að það getur verið erfitt að starfa innan veggja ráðhússins þar sem viðurkenning á vandanum er ekki til staðar.“

Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins.
Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins.
Auglýsing

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins hefur ákveðið að gefa kost á sér til áfram­hald­andi setu í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Sönnu á Face­book í dag. Sós­í­alista­flokk­ur­inn fékk 6,2 pró­sent atkvæða í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og þar af leið­andi einn mann inn.

„Vorið 2018 tók ég að mér verk­efni. Því er ekki lok­ið. Órétt­læt­ið, fátæktin og hús­næð­is­skort­ur­inn er enn til stað­ar. Stétta­skipt­ingin blasir við okkur og fær að við­gang­ast óáreitt af yfir­völd­um. Laun for­stjóra sem starfar í fyr­ir­tæki í eigu borg­ar­innar hækkar um margar millj­ónir á einu ári, á meðan að fátæk­ustu borg­ar­búum er gert að reiða sig á mat­ar­út­hlut­anir frá góð­gerða­sam­tök­um. Á meðan að stjórn­mála­fólk fær reglu­legar launa­hækk­anir áreynslu­laust, þurfa lág­launa­hópar að leggja niður störf til að fá við­ur­kenn­ingu á starfs­fram­lagi sínu. Starfs­fram­lagi sem skiptir öllu máli við að halda borg­inni gang­and­i,“ skrifar hún.

Auglýsing

Reykja­vík á að vera fyrir okkur öll

Sanna segir að gjald­taka hafi fram á ótrú­leg­ustu stöðum þar sem fjár­magns­eig­endur séu und­an­þegnir því að greiða til sam­fé­lags­ins.

„Reykja­vík­ur­borg rukkar börn fyrir þjón­ustu sem á að vera gjald­frjáls. Ef börn koma frá efna­litlum heim­ilum þar sem fjöl­skyldur hafa ekki burði til að greiða reikn­inga, er inn­heimtu­fyr­ir­tækjum sigað á fjöl­skyld­urn­ar. Börn læra snemma að full þátt­taka innan sam­fé­lags­ins stendur þeim ekki til boða.

Reykja­vík á að vera fyrir okkur öll en hún er það ekki. Hús­næði á að standa okkur öllum til boða en sú er ekki raun­in. Ég neita að búa í sam­fé­lagi þar sem brotið er á mann­rétt­indum fólks og því neitað um rétt til að búa við öruggt húsa­skjól og öruggar mann­sæm­andi aðstæð­ur. Þess vegna held ég áfram í þeirri sós­íal­ískri bar­áttu sem ég er í.

Ég við­ur­kenni að það getur verið erfitt að starfa innan veggja ráð­húss­ins þar sem við­ur­kenn­ing á vand­anum er ekki til stað­ar. Í þau skipti sem reiðin hefur náð mér hef ég bitið fast á jaxl­inn og haldið tár­unum inni í aug­unum svo þau renni ekki niður á kinn,“ skrifar hún.

Þarf að hlusta á raddir og reynslu þeirra sem best þekkja til hverju sinni

Þá telur Sanna að borg­ar­búar eigi ekki að þurfa að búa við óör­yggi og þann skaða sem hljót­ist af því að ekki hafi verið gripið inn í aðstæður þar sem hægt var að grípa inn í.

„Við verðum að byggja upp gott sam­fé­lag, þar sem grunn­þörfum allra er mætt. Til þess þurfum við að hlusta á raddir og reynslu þeirra sem best þekkja til hverju sinni og ég er þakk­lát fyrir öll sam­tölin sem ég hef átt við borg­ar­búa, starfs­fólk og allt það fólk sem veit hvað þarf að bæta innan borg­ar­inn­ar. Við verðum að byggja góðan grunn, til að tryggja að hér getum við öll átt gott líf til að vaxa og dafna,“ skrifar hún að lok­um.

Kæru félagar og Reyk­vík­ing­ar, ég gef kost á mér til áfram­hald­andi setu í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur. Vorið 2018 tók ég að...

Posted by Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir on Thurs­day, March 17, 2022

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent