Segir bókhaldsblekkingar ríkisstjórnarinnar við hækkun barnabóta draga úr trausti

Formaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina beita bókhaldsblekkingum við hækkun barnabóta. Samfylkingin dró tillögu sína um aukningu upp á þrjá milljarða króna til barnabóta á árinu 2023 til baka en ætlar nú að leggja hana aftur fram.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Kristrún Frosta­dótt­ir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir rík­is­stjórn­ina beita bók­halds­blekk­ingum við kynn­ingu á hækkun barna­bóta.

Rík­is­stjórnin kynnti í vik­unni nokkrar aðgerðir sem hún ætl­­aði að grípa til sem áttu á liðka fyrir kjara­­samn­ings­­gerð og hjálpa lág- og milli­­­tekju­hópum í sam­­fé­lag­inu. Ein stærsta aðgerðin var kerf­is­breyt­ing á barna­­bóta­­kerf­in­u.

Í kynn­ingu Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, kom fram að heild­­­ar­fjár­­­hæð barna­­­bóta yrði fimm millj­­­örðum krónum hærri en í óbreyttu kerfi á næstu tveimur árum eftir að breyt­ingin tekur gildi.

Auglýsing

„Ég hrós­aði rík­is­stjórn af þessu til­efni. Nú vil ég draga þetta hrós til baka og lýsa yfir von­brigðum með fram­komu hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra í þessu máli,“ sagði Kristrún í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun þar sem hún beindi fyr­ir­spurn sinni til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra.

Á þriðju­dags­kvöld var birt minn­is­­blað úr fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­inu á vef Alþingis sem hafði verið sent til efna­hags- og við­­skipta­­nefndar sama dag. Þar birt­ist önnur mynd af barna­­bóta­­kerfi næstu tveggja ára en í kynn­ingum ráð­herra, en sam­kvæmt því er gert ráð fyrir 600 milljón króna hækkun barna­bóta á næsta ári og 1,4 millj­arði króna árið 2024.

Því mun þurfa tvo millj­­arða króna í auknar fjár­­heim­ildir til að full­fjár­­­magna þær breyt­ingar sem rík­­is­­stjórnin kynnti á blaða­­manna­fundi sínum á mán­u­dag, en ekki fimm millj­­arða króna.

„Það er ekki einu sinni raunaukn­ing á gild­is­tíma kjara­samn­ing­anna, engin aukn­ing til barna­bóta ef tekið er til­lit til verð­bólgu. Svona bók­halds­blekk­ingar draga úr trausti. Og ég vil taka það fram að svona stjórn­mál eru mér ekki að skapi,“ sagði Kristrún.

Drógu breyt­ing­ar­til­lögu um hækkun til baka en leggja hana nú aftur fram

Sam­fylk­ingin lagði til breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­laga­frum­varpið þar sem gert var ráð fyrir aukn­ingu upp á þrjá millj­arða króna til barna­bóta á árinu 2023 en dró hana til baka þegar rík­is­stjórnin kynnti áform sín á mánu­dag. Kristrún greindi frá því að Sam­fylk­ingin hyggst nú leggja þessa breyt­ing­ar­til­lögu aftur fram við þriðju umræðu fjár­laga í ljósi þess sem fram hefur kom­ið.

Kristrún spurði því næst hvort for­sæt­is­ráð­herra finnd­ist það smekk­leg fram­setn­ing að boða fimm millj­arða króna hækkun barna­bóta þegar aukn­ingin er í raun mun minni, bæði miðað við fjár­mála­á­ætlun og frum­lag til fjár­laga.

„Og getur hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra stað­fest hér í dag, fyrir Alþingi og almenn­ingi, að það verður ekki nein raunaukn­ing í fram­lögum rík­is­ins til barna­bóta á árinu 2023?“

Ekki blekk­ing­ar­leikur heldur kerf­is­breyt­ingar

Katrín sagði það hafa legið fyrir frá upp­hafi að kostn­aður við þessa kerf­is­breyt­ingu verður fimm millj­örðum hærri á næstu tveimur árum en ella hefði orðið miðað við núver­andi fjár­hæðir og skerð­ing­ar­mörk.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég held að það sé mik­il­vægt að hátt­virtur þing­maður tali ekki um ein­hverjar blekk­ingar því að þetta hefur legið fyr­ir,“ sagði Katrín.

Kerf­is­breyt­ingar eru það mik­il­væga í til­lög­unni að mati for­sæt­is­ráð­herra, þar sem fjöl­skyldum sem njóta stuðn­ings í kerf­inu fjölgar um 2.900. En, þar er, að minnsta kosti að góðum hluta, að ræða fjöl­­skyldur sem hefðu verið áfram inni í núver­andi kerfi ef skerð­ingar vegna launa og verð­lags hefðu verið upp­­­færðar miðað við aðstæður í efna­hags­líf­in­u.

En Katrín ítrek­aði að ekki væri um neinn blekk­ing­ar­leik að ræða. „Hér er hins vegar um að ræða kerf­is­breyt­ingu sem hefur verið kallað eft­ir, m.a. úr flokki hv. þing­manns, sem er að barna­bóta­kerfið nái til fleiri fjöl­skyldna en áður.“

Hún sagði það einnig áhuga­vert að Kristrún fengi sig ekki til að gleðj­ast yfir því að verið sé að breyta barna­bóta­kerf­inu með því að fjölga þeim fjöl­skyldum sem njóta barna­bóta.

Kristrún sagði upp­still­ingu rík­is­stjórn­ar­innar á hækkun barna­bóta ekki eðli­lega. „Ef það er yfir­lýst mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar að nýta ekki fjár­heim­ildir í barna­bóta­kerf­inu, heldur nýta sér skerð­ing­ar­mörkin eins og þau eru, þá á fólk skilið að fá að vita það.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent