Segir pólitík Vinstri grænna spegilmynd þess sem Verbúðin fjallaði um

Formaður Viðreisnar segir Katrínu Jakobsdóttur og Svandísi Svavarsdóttur hafa „fórnað hugsjóninni fyrir ráðherrastóla í fjögur ár á síðasta kjörtímabili og lofað í stjórnarsáttmála að gera það í önnur fjögur ár“.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisn­ar, rifjar í grein sem hún ritar í Morg­un­blaðið í dag upp breyt­ingar sem gerðar voru á kvóta­kerf­inu árið 1990. Hún segir „áhuga­verða sögu“ hafa birst áhorf­endum Ver­búð­ar­innar sem sýni hversu snúin póli­tíkin geti ver­ið.

Í loka­þætt­inum kom fram að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var and­vígur frjálsu fram­sali veiði­heim­ilda og skrifar Þor­gerður að það hafi komið mörgum á óvart og rifjar í því sam­hengi upp það ferli sem leiddi til þeirra breyt­inga á kvóta­kerf­inu sem við búum við í dag.

Fyrstu árin giltu kvóta­lög til skamms tíma í senn, ýmist í eitt eða tvö ár og að við þær aðstæður var „tómt mál“ að tala um frjálst fram­sal, skrifar Þor­gerð­ur. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi í upp­hafi borið ábyrgð á þess­ari laga­setn­ingu en Alþýðu­banda­lagið verið á móti.

Auglýsing

„Árið 1990 kom sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Fram­sóknar hins vegar fram með frum­varp sem fól í sér var­an­lega úthlutun afla­heim­ilda og frjálst fram­sal þeirra. Þetta var stóra kerf­is­breyt­ing­in,“ skrifar Þor­gerður og heldur áfram: „En þegar hér var komið við sögu sat vinstri stjórn í land­inu með aðild Alþýðu­banda­lags­ins. Sam­hliða frum­varp­inu um ótíma­bundna úthlutun kvóta og frjálst fram­sal lagði stjórnin fram frum­varp um Þró­un­ar­sjóð sjáv­ar­út­vegs­ins. Hug­myndin með honum var að koma á póli­tískri fyr­ir­greiðslu­stofnun til þess að halda fyr­ir­tækjum gang­andi, sem ekki stóð­ust almenn rekstr­ar­skil­yrð­i.“

­Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn not­aði sjóðs­hug­mynd­ina sem for­sendu fyrir því að greiða atkvæði gegn báðum mál­un­um, skrifar Þor­gerð­ur. Innan Alþýðu­banda­lags­ins hafi áfram verið mikil and­staða og „margir þing­menn flokks­ins gáfu til kynna að þeir myndu greiða atkvæði gegn breyt­ing­unni í sam­ræmi við kosn­inga­lof­orðin þó að ráð­herr­arnir verðu afstöðu sína með því að mik­il­væg­ara væri fyrir þjóð­ina að njóta áfram­hald­andi setu flokks­ins í rík­is­stjórn. Þetta þýddi með öðrum orðum að fórna hug­sjónum fyrir ráð­herra­stóla“.

Málið hafi hins vegar staðið lengi vel í nokkrum þing­mönnum Alþýðu­banda­lags­ins og því um tíma óvissa um hvort meiri­hluti yrði fyrir því. Á end­an­um, skrifar Þor­gerð­ur, ákváðu þing­menn Alþýðu­banda­lags­ins að „fórna hug­sjón­inni“ til að tryggja áfram­hald­andi rík­is­stjórn­ar­sam­starf. „En sú dýrð stóð bara í fjóra mán­uði. Þá komu kosn­ing­ar.“

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir fengu meiri­hluta en stjórnin fór engu að síður frá og Alþýðu­banda­lagið fór í stjórn­ar­and­stöðu þar sem það sner­ist „um leið“ gegn kerf­inu.

Auglýsing

Þor­gerður rifjar því næst upp stofnun Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs og segir and­stöð­una við kerfið hafa orðið enn harð­ari innan henn­ar. Fyrir kosn­ing­arnar árið 2017 var það stefna VG að hækka auð­linda­gjöld og tíma­binda veiði­heim­ild­ir. „Undir for­ystu ráð­herr­anna Katrínar Jak­obs­dóttur og Svan­dísar Svav­ars­dóttur í núver­andi rík­is­stjórn hafa þing­menn VG aftur á móti ítrekað fórnað þeim mál­stað fyrir ein­hverja aðra hags­muni sem fæstum eru sýni­leg­ir.“

Stein­grímur J. Sig­fús­son og Svavar Gests­son fórn­uðu hug­sjón­inni í fjóra mán­uði fyrir ráð­herra­stóla, skrifar Þor­gerð­ur. „Þær Katrín Jak­obs­dóttir og Svan­dís Svav­ars­dóttir hafa fórnað hug­sjón­inni fyrir ráð­herra­stóla í fjögur ár á síð­asta kjör­tíma­bili og lofað í stjórn­ar­sátt­mála að gera það í önnur fjögur ár. Þessi póli­tík Vinstri grænna er speg­il­mynd þess sem við höfum fengið að fylgj­ast með í Ver­búð­ar­þátt­un­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent