Segir ríkisstjórnarsamstarfið ekki sjálfbært fyrir þjóðina

Þingmaður Viðreisnar líkir formanni Framsóknarflokksins við örmagna foreldri sem þarf sífellt að þola rifrildi barnanna sem sitja á vinstri og hægri hönd við matarborðið. Umræðan um útlendingamál sýni að ríkisstjórnarsamstarfið er ekki sjálfbært.

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Sig­mar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisn­ar, segir atburða­rás­ina í umræð­unni um mót­töku flótta­fólks síð­ustu daga lýsandi fyrir sam­starf rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

„[Rík­is­stjórn­ar­flokk­arn­ir] eru fullir af orku og vilja til verka en kom­ast ekki lönd né strönd vegna inn­an­meina og deilna. Deil­urnar við rík­is­stjórn­ar­borðið eru hand­bremsa í þeim verk­efnum sem ráð­ast þarf í,“ sagði Sig­mar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Jón Gunn­­ar­s­­son dóms­­mála­ráð­herra hefur verið sak­aður um að ala á ótta í garð hæl­is­leit­enda í umræðu um mál­efni flótta­fólks síð­ustu daga, bæði á Alþingi sem og í fjöl­miðl­um. Arn­dís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dótt­ir, þing­maður Pírata, hefur sagt það grafal­var­legt mál að dóms­mála­ráð­herra taki undir orð­ræðu sem er til þess fallin að auka jað­ar­setn­ingu fólks sem þegar til­heyrir minni­hluta­hópi.

Auglýsing

Dóms­mála­ráð­herra­mælti í síð­ustu viku fyrir frum­varpi til laga um landa­­mæri. Ráð­herra sagði af því til­­efni í sam­tali við Morg­un­­blaðið að borið hafi á því að hæl­­is­­leit­endur hafi komið til Íslands með venes­ú­elsk vega­bréf „þrátt fyrir að vera frá öðrum lönd­um“. Þá sagði hann í sam­tali við RÚV að ástandið væri stjórn­­­laust og að bregð­­ast þurfi við auknum fjölda hæl­­is­­leit­enda með hertum regl­­um.

Dóms­mála­ráð­herra klapp­aður upp af flokks­fé­lögum en mót­mælt af Vinstri grænum

Sig­mar sagði dóms­mála­ráð­herra vera klapp­aðan upp af flokks­fé­lögum sín­um, mjög ákaft, á meðan Vinstri græn rísi upp og mót­mæli.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á Alþingi í síð­ustu viku að hún gæti ekki tekið undir með dóms­mála­ráð­herra að um stjórn­laust ástand væri að ræða. Nokkrum dögum seinna viðr­aði dóms­mála­ráð­herra þá hug­mynd að koma upp lok­uðum flótta­manna­búðum hér á landi. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, segir það ekki standa til. Hann sagði í sam­tali við RÚV að slíkt lýsi póli­tískum skoð­unum dóms­mála­ráð­herra en ekki stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Sér­stök umræða um stöð­una á landa­mær­unum með til­liti til auk­ins fjölda hæl­is­leit­enda var á dag­skrá þing­fundar í gær. Þar spurði Sig­mar for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sig­urð Inga Jóhann­es­son, hvort hann væri hlynntur stefn­unni sem dóms­mála­ráð­herra hefur boðað í flótta­manna­mál­um. Sig­mar seg­ist hafa fengið „ákaf­lega fram­sókn­ar­legt svar“ sem hafi verið efn­is­lega svohljóð­andi: „Ég svara því seinna. Þá skal ég segja þér fyrir hvað ég stend og hvað ég vil verja.“

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Siguðrur Ingi Jóhannsson innviðaráðherra. Mynd: Bára Huld Beck

Líkti for­manni Fram­sóknar við örmagna for­eldri

Sig­mar hélt áfram og sagði for­manni Fram­sóknar vera ákveðin vor­kunn. „Hann er eins og örmagna for­eldri sem þarf sífellt að þola rifr­ildi og ósam­komu­lag barn­anna sem sitja á vinstri og hægri hönd við mat­ar­borð­ið. Slíkt tekur eðli­lega á taug­arnar til lengri tíma.“

Mál­efni flótta­fólks er ekki eina málið þar sem rík­is­stjórn­ar­flokk­unum greinir á að mati Sig­mars. „Þetta ger­ist í hverju mál­inu á fætur öðru. Þetta er að ger­ast í orku­mál­um, þetta er að ger­ast í land­nýt­ing­ar­mál­um, í auð­linda­mál­um, í skatta­málum og núna í útlend­inga­mál­um. Og þetta er ekki tæm­andi upp­taln­ing.“

Að hans mati gengur það ekki til lengdar að hafa rík­is­stjórn í land­inu sem hefur þrjár skoð­anir á hverju máli sem er til umfjöll­unar í núinu.

„Það er skilj­an­legt að flokk­arnir séu ólíkir og hafi hver sína sýn en þegar þeir koma sér ekki saman um stefnu, aftur og aft­ur, þá er þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf ekki sjálf­bært fyrir þjóð­ina,“ sagði Sig­mar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent