Segir vaxtahækkanir Seðlabankans kvíðaefni á heimilum landsins

Þingmaður Viðreisnar segir fjárlagapólitík snúast um að svara því hvernig samfélagið okkar virkar best. Hún gagnrýnir leiðina sem núverandi ríkisstjórn hefur ákveðið að fara og segir hana „þenja ríkið út bara af því bara“.

Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar. Mynd: Eyþór Árnason
Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar. Mynd: Eyþór Árnason
Auglýsing

„Í allt sumar hafa vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans verið kvíða­efni á heim­ilum lands­ins. Verð­bólga er í hæstu hæðum hér líkt og víða ann­ars stað­ar,“ sagði Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, þing­maður Við­reisn­ar, undir liðnum Störf þings­ins á Alþingi í dag.

Benti hún á að verð­bólgan væri vissu­lega ekki íslenskt vanda­mál en vextir hér væru marg­falt hærri en víða ann­ars stað­ar, til dæmis í Dan­mörku, þrátt fyrir að þar sé svipuð verð­bólga.

Í síð­ustu vaxta­á­kvörðun Seðla­bank­ans, sem tekin var 24. ágúst, voru stýri­vextir hækk­­aðir um 0,75 pró­­sent­u­­stig í 5,5 pró­­sent. Vext­irnir hafa ekki verið svo háir síðan í ágúst 2016, eða í sex ár. Eftir nýj­­ustu vaxta­hækk­­un­ina hefur pen­inga­­stefn­u­­nefnd Seðla­­banka Íslands hækkað vexti um um 4,75 pró­­sent­u­­stig síðan í maí í fyrra. Á þessu ári einu saman hafa vext­irnir hækkað um 3,5 pró­­sent­u­­stig, en þeir voru tvö pró­­sent um síð­­­ustu ára­­mót.

Verð­bólga mælist nú 9,7 pró­sent, minni en hún mæld­ist í mæl­ing­unni þar á und­an, í júlí, þegar hún mæld­ist 9,9 pró­sent. Þetta er hins vegar í fyrsta sinn sem tólf mán­aða verð­bólga lækkar milli mán­aða.

Fjórði stærsti útgjalda­lið­ur­inn vaxta­kostn­aður

Áætl­aður halli á fjár­laga­frum­varp­inu sem kynnt var í upp­hafi mán­aðar er 89 millj­arð­ar, 6,5 millj­örðum hærra en gert var ráð fyrir í vor. Þor­björg benti á að fjórði stærsti útgjalda­liður rík­is­ins er vaxta­kostn­aður og sagði hún fjár­lagapóli­tík í raun snú­ast um eina ein­falda en mik­il­væga spurn­ingu: Hvernig virkar sam­fé­lagið okkar best?

Auglýsing
„En skila­boð rík­is­stjórn­ar­innar eru alveg skýr: Hvað með það þótt útgjöldin blási út án þess að þjón­ustan batni? Hvað með það þótt mik­il­vægum fjár­fest­ingum í innviðum sé frestað? Hvað með það þó að læknar í sér­námi erlendis vilji ekki lengur koma heim eftir nám? Hvað með það þótt hjúkr­un­ar­fræð­ingar hætti störf­um? Hvað með það þó að aðstaða á krabba­meins­deild Land­spít­al­ans sé óboð­leg? Og hvað með það þó að heim­ilin séu að kafna vegna hækk­andi lána? Er ekki bara best að hækka gjöld á heim­il­in?“ sagði þing­mað­ur­inn.

Þor­björg Sig­ríður sagði fjár­lögin eiga að vera leið­ina að þessu mark­miði, það er leið­ina að því hvernig sam­fé­lagið virkar best.

„Við eigum að fara vel með fjár­muni rík­is­ins. Við eigum að verja þeim í mik­il­væga þjón­ustu í þágu almanna­hags­muna. Það á ekki að þenja ríkið út bara af því bara og skilja svo reikn­ing­inn eftir fyrir næstu rík­is­stjórn,“ sagði hún.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent