Segja mikilvæg símagögn hafa borist lögreglu seinna en öðrum

Gögn sem sýndu nákvæma staðsetningu síma eins farþegans í flugvélinni sem fórst í Þingvallavatni gengu manna á milli áður en lögreglan fékk þau í hendur. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Vélin fórst í Þingvallavatni á tólfta tímanum á fimmtudag.
Vélin fórst í Þingvallavatni á tólfta tímanum á fimmtudag.
Auglýsing

Þegar lög­reglan fékk gögn sem sýndu nákvæma stað­setn­ingu síma eins far­þega flug­vél­ar­innar TF-ABB aðfara­nótt föstu­dags höfðu þau gengið manna á milli á fimmtu­deg­in­um, dag­inn sem vélin hvarf.

Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Fjórir voru í vél­inni, íslenskur flug­maður og þrír erlendir ferða­menn. Þeir fór­ust allir í slys­inu.

Auglýsing

Frétta­blaðið segir að svo virð­ist sem mik­il­væg grund­vall­ar­gögn, þ.e. upp­lýs­ingar um stað­setn­ingu far­síma eins far­þeg­ans, hafi ekki borist stjórn­endum leit­ar­inn­ar, þ.e. lög­reglu, fyrr en mörgum klukku­stundum eftir að þau höfðu komið fyrir sjónir björg­un­ar­sveit­ar­manna. Þá hafi þau enn­fremur gengið manna á milli í flug­heim­inum á Íslandi. Gögnin bár­ust m.a. rit­stjórn Frétta­blaðs­ins að kvöldi fimmtu­dags en það var þó ekki fyrr en morg­un­inn eftir að stjórn­endur leit­ar­innar kváð­ust hafa fengið gögn frá erlendu síma­fyr­ir­tæki sem beindi allri leit­inni að Ölf­us­vatns­vík í Þing­valla­vatni. Þó hafði leit við vatnið verið hafin dag­inn áður en einnig á mun stærra svæði, m.a. við Kleif­ar­vatn.

Oddur Árna­son yfir­lög­reglu­þjónn seg­ist í sam­tali við Frétta­blaðið ekki vita hvernig standi á því að gögnin hefðu borist lög­reglu svo miklu síð­ar.

Upp­fært kl. 12.00: Lög­reglan á Suð­ur­landi segir þessar frétt­ir, þ.e. að stað­setn­ing úr far­síma hafi ekki borist stjórn­endum aðgerða í tíma, rang­ar. Í sam­eig­in­legum aðgerða­grunni björg­un­ar­sveita og almanna­varna þ.m.t. LHG, lög­reglu, sjúkra­flutn­inga, Isa­via ofl. sé fyrsta vís­bend­ing úr far­síma skráð þegar á fimmtu­deg­inum 3. febr­úar kl. 17:51 . Kl. 15:40 þennan sama dag hafi legið fyrir í sama grunni eftir gögnum Isa­via að flug­leiðin hafi verið um Gríms­nes­ið.  Leit með sér­stakri vél frá danska hernum hafi fyrst verið beint að Gríms­nesi og suð­ur­hluta Þing­valla­vatns­. Kl. 17:40 var þyrla Gæsl­unnar með menn úr sér­að­gerða­sveit í sér­stakri leit yfir og í Ölf­us­vatns­vík.

Form­leg stað­fest­ing á síma­gögn­um, sem þegar höfðu verið notuð við skipu­lagn­ingu leitar­að­gerða, fékkst hins vegar ekki fyrr en síðar frá þar til bærum yfir­völdum erlend­is, segir í til­kynn­ing­unni.

Vélin sést á örygg­is­mynda­vélum við vatnið

Mbl.is greindi frá því í gær­kvöldi að á upp­tökum örygg­is­mynda­véla sem eru við Þing­valla­vatn megi sjá það er vélin fórst í vatn­inu. Upp­tökur sýna einnig vél­ina á flugi á svæð­inu.

Sam­kvæmt heim­ildum mbl.is virð­ist sem svo, á einni upp­tök­unni, að flug­vél­inni sé stýrt niður að vatn­inu með vinstri beygju. Í kjöl­farið líti út fyrir að vél­inni hafi verið ætlað að hafa snert­ingu við vatn­ið, þ.e. annað hvort svo­kall­aða snerti­lend­ingu eða að lenda á vatn­inu.

Vatnið var að því er fram kemur í frétt mbl.is ísilagt en ísinn hafi þó verið þunn­ur.

Lík hinna látnu fund­ust á sunnu­dag en vegna veð­urs hefur ekki enn verið unnt að kafa eftir þeim.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent