Segja stærri aðgerðir á vinnumarkaði geta sparað ríkissjóði tugi milljarða

Samfylkingin kynnti nýjar tillögur um vinnumarkaðsúrræði í dag sem flokkurinn segir að gætu lækkað atvinnuleysi og sparað ríkissjóði tugi milljarða króna þegar fram í sækir.

Kristrún Frostadóttir, frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavík
Kristrún Frostadóttir, frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavík
Auglýsing

Hægt væri að draga úr atvinnu­leysi og spara í rík­is­fjár­málum til lengri tíma ef rík­is­stjórnin myndi ráð­ast í stór­tækar aðgerðir á vinnu­mark­aði, að mati Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Þessar aðgerðir fælu meðal ann­ars í sér hækkun atvinnu­leys­is­bóta, mark­viss­ari ráðn­ing­ar­styrki og sér­staka styrki til lista­fólks til að halda við­burði um allt land.

Þetta kom fram á blaða­manna­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar í morgun þar sem til­lögur um ný úrræði gegn atvinnu­leysi voru kynnt­ar. Glær­urnar af fund­inum má nálg­ast með því að smella hér.

Gætu sparað rík­is­sjóði allt að 50 millj­arða

Sam­kvæmt Odd­nýju Harð­ar­dótt­ur, þing­flokks­for­manni flokks­ins, kostar hver pró­senta af atvinnu­leysi rík­is­sjóð 6 millj­arða króna á ári. Aðgerð­irnar sem flokk­ur­inn kynnti myndu hins vegar kosta rík­is­sjóð 18 millj­arða og myndu þær því ekki hafa nei­kvæð áhrif á afkomu hins opin­bera ef atvinnu­leysi yrði pró­sentu­stigi lægra næstu þrjú árin vegna þess.

Auglýsing

Kristrún Frosta­dótt­ir, hag­fræð­ingur og fram­bjóð­andi Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík, sagði hins vegar að úrræðin gætu borgað sig upp á 1-2 árum, þar sem þau vinna hraðar á atvinnu­leys­inu. Á tíma­bil­inu 2021-2025 gæti rík­is­sjóður sparað allt að 50 millj­arða vegna verk­efn­is­ins ef atvinnu­leysi minnkar strax um 2 pró­sent vegna aðgerð­anna.

„Við viljum sjá nýjan tón sem tekur mið af raun­veru­legri dýnamík í rík­is­fjár­mál­u­m,“ bætti Kristrún við á fund­inum og ítrek­aði að mik­il­vægt væri að gera sér grein fyrir að kostn­aður hins opin­bera í dag gæti dregið úr kostn­aði þess í fram­tíð­inni svo um mun­ar.

Hækkun bóta og stuðn­ingur við lista­menn

Sam­fylk­ingin lagði til hækkun atvinnu­leys­is­bóta upp í 95 pró­sent af lág­marks­tekju­trygg­ingu og leng­ingu tíma­bils þeirra í 12 mán­uði. Auk þess lagði hún til að ráðn­ing­ar­styrkir yrðu lengd­ir, og að úrræðið yrði útvíkkað svo það tæki einnig til þeirra sem hefðu verið vinnu­litlir síðan 2019.

Þar að auki vill flokk­ur­inn veita þeim sem hafa verið atvinnu­lausir tvö­faldan per­sónu­af­slátt, sem væri sam­kvæmt þeim ígildi aft­ur­virks tekju­falls­styrks fyrir heim­il­in. Flokk­ur­inn vill einnig fram­lengja tíma­bundna hækkun end­ur­greiðslna á rann­sókn­ar- og þró­un­ar­kostn­aði og setja 800 millj­ónir í Tækni­þró­un­ar­sjóð.

Þess utan lagði flokk­ur­inn til að ungt fólk og lista­menn yrðu styrktir sér­stak­lega einnig, en Kristrún sagði það vera þekkt fyr­ir­bæri í kreppum að störfin sem færu fyrst væru störfin sem ungt fólk vinn­ur. Styrkirnir fælu í sér lengri tíma­bil fyrir sum­ar­störf náms­manna og að þeim yrði tryggður réttur til atvinnu­leys­is­bóta í náms­hlé­um. Einnig yrði 250 millj­ónum króna varið í að styrkja lista­fólk til að halda við­burði um allt land.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent