Sigurður Einarsson: Framið á mér dómsmorð

sigurdur_og_olafur.jpg
Auglýsing

"Senni­lega er and­rúms­loftið á Íslandi þannig að það gagn­ist mér ekk­ert að barma mér í fjöl­miðlum yfir því dóms­morði sem ég tel að þar hafi verið framið. Ég verð samt að trúa því að sagan muni sjá um að þessi dómur fái verðug eft­ir­mæli." Þetta er meðal þess sem kemur fram í aðsendri grein í Frétta­blað­inu eftir Sig­urð Ein­ars­son, fyrrum stjórn­ar­for­mann Kaup­þings, sem í síð­ustu viku var dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi í Hæsta­rétti fyrir sinn hlut í Al Than­i-­mál­inu svo­kall­aða.

Þar gerir Sig­urður athuga­semdir við að Hæsti­réttur hafi lítið sem ekk­ert fjallað um hér­aðs­dóm­inn sem sak­born­ingar í mál­inu áfrýj­uðu til hans, heldur hafi Hæsti­réttur komið með nýjan dóm sem hafi haft litla teng­ingu við hér­aðs­dóm­inn. "Ég fæ ekki betur séð en að Hæsti­réttur geri sér lítið fyrir og afnemi regl­una um að í land­inu séu tvö dóm­stig og komi í veg fyrir að ég geti áfrýjað nið­ur­stöðu sem ég er ósáttur við."

Segir hlut­deild hafa byggt á athafn­ar­leysi



Sig­urður segir að hann hafi verið ákærður sem aðal­maður í umboðs­svikum í mál­inu en að Hæsti­réttur hafi fall­ist á að hann hafi ekki haft það umboð sem ákæru­valdið taldi hann hafa svikið gegn. "Því var ég sýkn­aður af umboðs­svik­um. Þetta hjálp­aði mér lítið því Hæsti­réttur dæmdi mig í stað­inn fyrir ann­að, þ.e. hlut­deild í umboðs­svik­um! Ég hafði ekki verið ákærður fyrir hlut­deild í umboðs­svikum og varð­ist því ekki slíku broti frekar en öðru sem ég var ekki ákærður fyr­ir.

Mér er það ljóst að heim­ilt er að dæma þann sem ákærður er sem aðal­maður fyrir hlut­deild í brot­inu enda verði vörnum ekki áfátt. Hvernig það geti átt við í mínu til­viki er mér óskilj­an­legt þar sem Hæsti­réttur virð­ist líta svo á að hlut­deild mín í brot­inu hafi byggst á athafna­leysi. Ég sé að Jón Þór Óla­son, lektor í lög­fræði við HÍ, telur í sam­tali við Morg­un­blaðið að hér sé um nýja túlkun á umboðs­svika­á­kvæð­inu að ræða."

Auglýsing

Engar sann­anir um sekt



Sig­urður segir að honum hafi alltaf skilist að sak­born­ingar eigi að njóta vafans í saka­mál­um. Það eigi ekki við í dómi Hæsta­réttar að hans mati. " Sama er hvað ég leita í dómn­um, ég finn ekki að vísað sé til neinna sann­ana um mína sekt. Hæsti­réttur kýs að líta alger­lega fram hjá fram­burði þeirra vitna sem komu fyrir dóm sem öll báru á sama veg um að aðkoma mín að þessu máli hafi engin ver­ið. Þannig að jafn­vel þótt lög kunni að hafa verið brotin í þessu máli, sem ég held að hafi ekki ver­ið, þá var aðkoma mín eng­in.

Þessu skautar Hæsti­réttur fram hjá og segir að "?…?hafið sé yfir allan skyn­sam­legan vafa að ákærða Sig­urði hafi verið kunn?…". Þetta er sagt án þess að vísa í sönn­un­ar­gögn. Eini vitn­is­burð­ur­inn sem vísað er til er vitn­is­burður Hreið­ars Más. Hann var aftur á móti ekki spurður út í vit­neskju mína um lán vegna kaupa hluta­bréf­anna heldur vit­neskju mína um annað lán sem ég var ekki ákærður fyr­ir. Það má svo velta því fyrir sér hvort það telj­ist sönnun um sekt ef Hreiðar hefði sagt mig hafa fulla vit­neskju um upp­bygg­ingu við­skipt­anna þegar ég hef ítrekað haldið því fram að svo hafi ekki ver­ið. Eftir því sem mér skilst þá hafa dómar Hæsta­réttar hingað til verið á þann máta að við slíkar aðstæður sé sekt ekki sönn­uð."

Að mati Sig­urðar eru þetta mein­bugir á dómi Hæsta­réttar en honum finnst fáir sem fjalli um dóm­inn á Íslandi velta þessum þáttum fyrir sér og það er að hans mati alvar­legt. "Mér finnst umræðan sem fyrr ein­kenn­ast af því að þessir menn, sem vissu­lega voru flestir banka­menn, eigi allt vont skil­ið."

Ólafur telur dóm­inn fyr­ir­fram ákveð­inn



Ólafur Ólafs­son, sem var í síð­ustu viku dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi fyrir sinn hlut í Al Than­i-­mál­inu, ásak­aði íslenska stjórn­mála­menn um að gera banka­geir­ann að blóra­böggli fyrir þeirra eigin mis­tökum í sam­tali við Reuters frétta­stof­una í gær. „Ég held að dóm­ar­arnir hafi fyrst ákveðið hver útkoman ætti að vera svo svo skrifað dóminn".

„Ís­land er mjög lítið land...­Veggirnir á milli stjórn­mála­manna og emb­ætt­is­manna eru þunn­ir. Stjórn­mála­menn­irnir ákváðu að setja allan fókus á banka­geirann, en að rann­saka ekki það sem aflaga fór í efna­hags­kerf­inu, sem er á þeirra ábyrgð," sagði Ólaf­ur.

Aðrir sak­born­ingar sem hlutu dóm í mál­inu, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, sem fékk fimm og hálfs árs dóm, og Magnús Guð­munds­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, sem fékk fjög­urra og hálfs árs dóm, hafa ekki tjáð sig opin­ber­lega um nið­ur­stöð­una síðan að hún féll fyrir sex dögum síð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None