Sjö menn handteknir vegna Hatton Garden skartgriparánsins

HATTON2204A.jpg
Auglýsing

Scotland Yard hand­tók í dag sjö menn, sem grun­aðir eru um aðild að umfangs­miklu skart­griparáni sem átti sér stað hjá breska skart­gripa­sal­anum Hatton Gar­den í byrjun apr­íl. Frétta­mið­ill­inn London Even­ing Stand­ard greinir frá mál­inu.

Í sam­hæfðum aðgerðum rudd­ist 200 manna lög­reglu­lið inn á tólf heim­ili í Norð­ur­-Lund­únum og hand­tók hina grun­uðu. Í til­kynn­ingu frá lög­reglu segir að tölu­vert magn verð­mæta hafi verið hald­lagt í lög­reglu­að­gerð­un­um, sem talið er að séu munir úr rán­inu. Um er að ræða stóra poka fulla af skart­grip­um, sem fund­ust á heim­ilum mann­anna.

Allir menn­irnir sem hand­teknir voru eru Bretar og eru á aldr­inum 48 til 76 ára. Í dag eru liðnar um sex vikur frá rán­inu, þar sem skart­gripa­þjófar komust undan með verð­mæti fyrir hátt í 60 millj­ónir punda, eða hátt í þrettán millj­arða króna, í formi dem­anta, pen­inga og ann­arra verð­mæta, í þaul­skipu­lögðu og bíræfnu ráni.

Auglýsing

Ræn­ingj­arnir bor­uðu gat á stein­vegg sem var um hálfur metri að þykkt, til að kom­ast inn í geymslu skart­gripa­sal­ans, þar sem verð­mætin voru geymd í banka­hólf­um. Rán­inu hefur verið líkt við Hollywood kvik­mynd­ina Oceans Eleven, en þjófarnir slógu út lyftu og komust niður lyftu­göngin í kjall­ara þar sem verð­mætin voru geymd.

Vanga­veltur hafa verið uppi um að Aust­ur-­Evr­ópsk glæpa­sam­tök hafi ­staðið að rán­inu og til þess að fram­kvæma það hafi þau ­fengið upp­lýs­ingar frá inn­an­búð­ar­manni. Lög­reglu­að­gerð­irnar í dag benda til að menn­irnir hafi ákveðið að halda kyrru fyrir í Lund­ún­um, þrátt fyrir vanga­veltur um hið gagn­stæða, til að bíða af sér mesta fjaðrafok­ið.

Aðgerð­irnar í dag eru taldar vera Scotland Yard til hróss, en lög­reglan hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir rann­sókn sína á rán­inu sem og við­brögð sín þeg­ar við­vör­un­ar­kerfi skart­gripa­sal­ans fór í gang.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None