Skattayfirvöld skoða greiðslur frá útlöndum til að fylgjast með útleigu í gegnum Airbnb

9952973665_86876ca100_c.jpg
Auglýsing

Skortur á upp­lýs­ingum um hverjir selj­endur eru og hvaða eignir verið er að leigja út til ferða­manna í gegnum íbúða­leigu­síð­una Air­bnb gerir eft­ir­lit skatta­yf­ir­valda flók­ið. Þess vegna hefur rík­is­skatt­stjóri stundað svo­kall­aða „frá­vika­grein­ingu“ og skoðað greiðslur erlendis frá inn á inn­lenda banka­reikn­inga. Þetta kom fram í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar í dag þar sem rætt var við Sig­urð Jens­son, for­stöðu­manns eft­ir­lits­sviðs Rík­is­skatt­stjóra.

„Við höfum fylgst vel með þessu. Eins og þetta er sett upp í dag þá er ekki hægt að fá upp­lýs­ingar um það hverjir eru selj­endur og hvaða eignir er verið að leigja út. Það gerir eft­ir­lit flókn­ara. Því hefur verið reynt að fara aðrar leiðir í þessu. Gera það með þeim hætti, við höfum skoðað greiðslur erlendis frá inn á banka­reikn­inga. Því er í raun farið í frá­vika­grein­ingu hjá gjald­endum og þannig uppgvötað mis­fellur í skatt­skil­u­m,“ sagði Sig­urð­ur. Hann sagði mál sem varða greiðslur erlendis frá inn á íslenska banka­reikn­inga skipta hund­ruð­um, en gat ekki sagt hversu mörg þeirra tengj­ast íbúða­leigu­síð­um.

Auglýsing


Yfir 1.800 íbúðir og her­bergi í Reykja­vík eru skráð á Air­bn­b.com, sem er vin­sælasta íbúða­leigu­síð­an. Sæm­kvæmt núgild­andi lögum þurfa íbúða­eig­endur að sækja um leyfi til að leigja út íbúð­ina sína og greiða af starf­sem­inni skatta. Það gera hins vegar fæst­ir. Í frétt RÚV frá apríl síð­ast­liðnum sagði að hátt í 60 pró­sent íbúða og her­bergja sem leigð eru ferða­mönnum í Reykja­vík í gegnum vef­síð­una séu leigð án starfs­leyf­is. Á síð­asta þingi lagði iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra fram frum­varp sem heim­il­aði heimagist­ingu gegn end­ur­gjaldi á lög­heim­ili fólks í allt að átta vikur á ári. Frum­varpið varð ekki að lögum fyrir þing­lok.



Miklar tekjur má hafa af skamm­tíma­út­leigu íbúða til ferða­manna í Reykja­vík en algengt verð fyrir gistinótt er 150 til 200 doll­ar­ar, jafn­virði um 20 til 27 þús­und króna.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None