Skoski þjóðarflokkurinn með 57 af 59 þingsætum - tíu dagar í kosningar

9954063573_8c787b221a_z.jpg
Auglýsing

Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn (SNP) nýtur stuðn­ings 54 pró­senta skoskra kjós­enda og mun fá 57 þing­sæti í bresku þing­kosn­ing­unum sem fram fara eftir tíu daga, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könn­un. ­Þing­sæti Skota í West­min­ster, þing­inu í London, eru 59 tals­ins.

Það verða því að­eins tvö þing­sæti til skipt­anna fyrir hina flokk­anna, og Verka­manna­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndir demókratar munu fá sitt­hvort sæt­ið, sam­kvæmt könn­un­inni. Aðrir flokkar kom­ast ekki á blað, en í Bret­landi eru ein­menn­ings­kjör­dæmi. Allt útlit er fyrir að Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn verði því mjög áhrifa­mik­ill í breska þing­inu eftir kosn­ing­ar, enda virð­ist ekki lík­legt að neinn flokkur nái meiri­hluta þing­sæta. Sam­kvæmt nýj­ustu könn­unum sem Guar­dian hefur látið gera á lands­vísu fengi Íhalds­flokk­ur­inn 274 sæti og Verka­manna­flokk­ur­inn 270. 326 sæti þarf til að ná meiri­hluta í þing­inu.

nicola sturgeon Nicola Stur­ge­on, leið­togi Skoska þjóð­ar­flokks­ins. MYND: EPA

Auglýsing

 

Sam­kvæmt könn­un­inni, sem fyr­ir­tækið TNS gerði og skoska sjón­varps­stöðin STV greinir frá, var stuðn­ingur við Verka­manna­flokk­inn 22 pró­sent, við Íhalds­menn 13 pró­sent og stuðn­ingur við Frjáls­lynda demókrata 6 pró­sent. UKIP, breskir þjóð­ern­iss­in­ar, og græn­ingjar, fengju tvö pró­sent hvor.

67 pró­sent aðspurðra sögð­ust vissir um að þeir myndu kjósa í kosn­ing­unum þann 7. maí næst­kom­andi. Það er hærra hlut­fall en mælist að með­al­tali í Bret­landi, þar sem 62 pró­sent eru viss um að nýta kosn­inga­rétt­inn.

„Fleiri og fleiri ein­stak­lingar setja traust sitt á SNP til að láta rödd Skotlands heyr­ast í West­min­ster,“ segir Angus Roberts­son, fram­bjóð­andi SNP. „Þessi könnun bendir einnig til þess að stuðn­ingur við SNP komi frá fólki sem kaus gegn sjálf­stæði í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni sem og þeim sem kusu með sjálf­stæði - þar sem fólk gerir sér grein fyrir því að hópur þing­manna frá SNP mun gera Skotland sterkara í þing­in­u.“ Hann sagði jafn­framt að könn­unum sem þessum væru tekið fagn­andi, en að ekk­ert væri sjálf­gefið og áfram yrði unnið að því að vinna traust kjós­enda um allt land­ið.

Tom Cost­ley, for­stjóri kann­ana­fyr­ir­tæk­is­ins TNS Scotland, segir við STV að Nicola Stur­geon og Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn virð­ist bara verða sterk­ari og sterk­ari. Fólk í Skotlandi virð­ist vera áhuga­sam­ara um stjórn­mál eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði síð­ast­liðið haust.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None