Sóttkví og skólareglugerð afnumin

Sóttkví hefur verið afnumin. Skólareglugerð í grunn- og framhaldsskólum fellur niður á miðnætti og fjöldatakmarkanir fara úr 50 í 200. Veitinga- og skemmtistaðir mega hafa opið til miðnætti.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra
Auglýsing

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum fyrir hádegi að aflétta hluta af sótt­varna­tak­mörk­unum sem ekki áttu að taka gildi fyrr en 24. febr­ú­ar, í öðru skrefi aflétt­ing­ar­á­ætl­unar stjórn­valda vegna COVID-19. „Ef ekk­ert óvænt ger­ist þá getum við aflétt öllu í lok mán­að­ar," sagði Willum Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra að loknum rík­is­stjórn­ar­fundi. Meðal helstu breyt­inga er að 200 manns verður heim­ilt að koma saman í stað 50 og sótt­kví og skóla­reglu­gerð fellur úr gildi.

Reglur um sótt­kví falla úr gildi í dag og eru því munu 9.712 manns sem skráð eru í sótt­kví þessa stund­ina losna þegar reglu­gerðin birt­ist í Stjórn­ar­tíð­indum síðar í dag. Þeir sem þegar eru í sótt­kví þurfa því ekki að mæta í sýna­töku til að losna og á það einnig við um þá sem áttu að fara í sýna­töku í dag. Þeim sem hafa verið útsettir fyrir smiti verður ekki lengur skylt að sæta smit­gát þótt hvatt sé til hennar og þar með fellur jafn­framt brott skylda til sýna­töku í lok smit­gát­ar.

Auglýsing

Á mið­nætti verður skóla­reglu­gerð afnumin og verða því engar tak­mark­anir á skóla­haldi í grunn- og fram­halds­skól­um. Þannig verða skóla­skemmt­anir heim­ilar á ný.

Aflétt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda sem kynnt var fyrir tveimur vikum er í þremur skref­um. Sam­kvæmt henni á næsta skref að taka gildi 24. febr­úar en nú er ljóst að hluti þeirra tak­mark­ana sem átti að aflétta þá verður aflétt á mið­nætti.

­Nið­ur­fell­ing á reglum um ein­angrun og sótt­kví er meðal þess sem á að taka gildi í næsta skrefi aflétt­ing­ar­á­ætl­un­ar­innar en heil­brigð­is­ráð­herra og Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir sögðu í fréttum í gær að ekki þætti tíma­bært að afnema ein­angr­un. Sótt­kví hefur hins vegar verið afnum­in.

Í reglu­gerð­inni er sund- og lík­ams­rækt­ar­stöðv­um, sem og skíða­svæð­um, heim­ilt að taka á móti gestum með fullum afköst­um.

Afgreiðslu­tími staða með vín­veit­inga­leyfi verður lengdur um eina klukku­stund, það er að heim­ilt er að taka á móti gestum til mið­nættis en allir þurfa að hafa yfir­gefið stað­inn klukkan eitt.

Smitum hefur farið fjölg­andi í vik­unni. Á mið­viku­dag var enn eitt metið sett þega 2.252 smit greindust dag­inn áður. Á sama tíma hefur inn­lögnum á Land­spít­ala ekki fjölg­að. 32 eru á spít­ala sem stendur með COVID-19. Karl­maður á níræð­is­aldri með Covid-19 lést á leg­u­­deild á spít­al­anum í gær.

Reglu­gerðin sem tekur gildi á mið­nætti gildir í tvær vik­ur, eða til og með 25. febr­ú­ar. Annað skref aflétt­ing­ar­á­ætl­unar stjórn­valda á að taka gildi þann 24. febr­úar en allar tak­mark­anir eiga að falla úr gildi 14. mars. Það gæti þó breyst ef marka má orð heil­brigð­is­ráð­herra og öllum tak­mörk­unum verði aflétt í lok febr­ú­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent