Spyr hvort Seðlabankinn sé í liði með íslenskum almenningi

Það að leyfa krónunni að styrkjast ætti að auðvelda Seðlabankanum að rækja hlutverk sitt og skyldu um að halda verðbólgunni í skefjum og auðvelda íslenskum almenningi lífið, samkvæmt þingmanni Viðreisnar.

Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar.
Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þing­maður Við­reisn­ar, Guð­brandur Ein­ars­son, spurði undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag hvort verið væri að fara rétta leið til að ná stöð­ug­leika í efna­hags­málum sem væri bæði mik­il­vægur og eft­ir­sókn­ar­verður fyrir íslenskan almenn­ing.

„Sam­kvæmt fram­komnum upp­lýs­ingum greip Seðla­banki Íslands inn í á gjald­eyr­is­mark­aði síð­ast­lið­inn föstu­dag og keypti gjald­eyri fyrir rúmar 800 millj­ónir króna í þeim til­gangi að koma í veg fyrir styrk­ingu krón­unn­ar.

Það liggur fyrir að styrk­ing krón­unnar myndi leiða til lækk­unar á verði inn­fluttrar vöru og ætti því að draga úr verð­bólgu. Í stað þess að leyfa krón­unni að styrkj­ast til hags­bóta fyrir almenn­ing velur Seðla­bank­inn að halda krón­unni veikri og hækka vexti í stað þess að reyna að draga úr verð­bólgu­þrýst­ing­i,“ sagði Guð­brandur í upp­hafi ræðu sinn­ar.

Auglýsing

Hann sagði að geng­is­styrk­ing sem slík ætti að auð­velda Seðla­bank­anum að ná mark­miðum sínum um 2,5 pró­sent verð­bólgu.

Stýri­vextir eru 3,75 pró­sent og verð­bólgan hefur ekki mælst meiri í 12 ár

Kjarn­inn greindi frá því í byrjun maí þegar Pen­inga­­­stefn­u­­­nefnd Seðla­­­banka Íslands ákvað að hækka stýri­vexti bank­ans í 3,75 pró­­­sent. Um var að ræða eins pró­­­sent­u­­­stiga hækkun frá því sem áður var og alls hafa vextir hækkað um þrjú pró­­­sent­u­­­stig frá því í maí í fyrra, þegar vaxta­á­kvörð­un­­­ar­­­ferli Seðla­­­banka Íslands hófst.

Verð­­bólga mæld­ist 7,2 pró­­sent í apríl og hefur ekki mælst meiri frá árinu 2010. Verð­­bólg­u­­mark­mið Seðla­­bank­ans er 2,5 pró­­sent. Horfur hafa því versnað veru­­lega og verð­­bólgan er óra­fjarri mark­miði bank­ans. Í yfir­­lýs­ing­u pen­inga­­stefn­u­­nefnd­ar við vaxta­hækk­un­ina kom fram að sem fyrr vægi hækkun hús­næð­is­verðs og ann­­arra inn­­­lendra kostn­að­­ar­liða þungt auk þess sem alþjóð­­legt olíu- og hrá­vöru­verð hefði hækkað mik­ið.

Vill leyfa krón­unni að styrkj­ast

Guð­brandur sagði á þingi í dag að sú leið sem Seðla­bank­inn er að fara, þ.e. að beita stýri­vaxta­hækk­unum í stað þess að leyfa krón­unni að styrkjast, hefði jafn­framt í för með sér að vaxta­munur við útlönd væri að aukast. Það myndi að end­ingu auka inn­flæði fjár­magns sem aftur ætti að gera það að verkum að krónan myndi halda áfram að styrkj­ast.

„Ein­hverra hluta vegna á maður erfitt með að skilja hvers vegna þessi leið er val­in, að hækka stýri­vexti og koma í veg fyrir að krónan styrk­ist. Það að leyfa krón­unni að styrkj­ast ætti að auð­velda Seðla­bank­anum að rækja hlut­verk sitt og skyldu um að halda verð­bólg­unni í skefjum og auð­velda íslenskum almenn­ingi líf­ið. Seðla­bank­inn velur hins vegar aðrar leiðir og maður hlýtur að spyrja hvort Seðla­bank­inn sé í liði með íslenskum almenn­ing­i,“ sagði hann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent