Stefnt að því að framlengja fjölmiðlastyrki til tveggja ára en ekki eins árs

Þvert á það sem Kjarninn hefur heimildir fyrir að hafi orðið niðurstaðan á ríkisstjórnarfundi fyrr í vikunni er nú komið fram frumvarp sem framlengir styrkjakerfi fyrir einkarekna fjölmiðla til tveggja ára.

Lilja Alfreðsdóttir er menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir er menningar- og viðskiptaráðherra.
Auglýsing

Sam­kvæmt frum­varpi Lilju Alfreðs­dóttur menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra stendur til að það styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla sem verið hefur við lýði frá því í fyrra verði fram­lengt til tveggja ára.

Þetta er sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans breyt­ing frá því sem ákveðið var á rík­is­stjórn­ar­fundi fyrr í vik­unni, þar sem málið var afgreitt eftir nokkrar deil­ur.

Eftir þann fund var stefnt að fram­lagn­ingu frum­varps sem gilti bara til eins árs, eða út árið 2023, eins og Kjarn­inn sagði frá í gær.

Frum­varp Lilju um málið var lagt fram á Alþingi í dag, en sam­kvæmt því verður gild­is­tími ákvæða um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla fram­lengdur til 1. jan­úar 2025. Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að aðeins sé horft til þess að lengja gild­is­tím­ann til tveggja ára, sökum þess að miklar breyt­ingar séu í vændum á stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla á hinum Norð­ur­lönd­unum og hafa eigi þær til hlið­sjónar við mörkun stefnu til lengri tíma.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir einnig að við mat á stuðn­ingi árs­ins 2021 megi greina að sá stuðn­ingur sem einka­reknir fjöl­miðlar fengu hafi nýst afar vel.

Auglýsing

„Stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla hefur meðal ann­ars gert sumum fjöl­miðlum kleift að fjölga stöðu­gildum á rit­stjórn, halda útgáfu óbreyttri, komið í veg fyrir frekara aðhald í rekstri og bætt aðstöðu blaða­manna, svo fátt eitt sé nefnt. Styrk­þegar eru sam­mála um að styrk­ur­inn hafi skipt miklu máli. Þrátt fyrir fram­an­greint hefur komið fram gagn­rýni um að stuðn­ings­kerfið sé ekki nægi­lega fyr­ir­sjá­an­legt en gild­is­tími kafla lag­anna um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla var ein­ungis til tveggja ára,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þar er einnig fjallað um að í Dan­mörku, Nor­egi og Sví­þjóð standi miklar breyt­ingar fyrir dyrum hvað þetta varð­ar, og að í þessum löndum virð­ist þró­unin vera sú að auka fjár­magn til úthlut­unar en lækka þak ein­stakra styrkja.

„Þegar þetta er ritað hafa drög að frum­vörpum þess efnis ekki verið birt. Í ljósi þess að gíf­ur­lega miklar breyt­ingar eru í vændum á stuðn­ings­kerfum Dan­merk­ur, Nor­egs og Sví­þjóðar og þeirrar miklu reynslu sem fram­an­greind lönd hafa af fjöl­miðla­styrkjum verður gild­is­tími laga­á­kvæða sam­kvæmt frum­varpi þessu aðeins tvö ár, með það að mark­miði að innan þess tíma verði lagt fram frum­varp til laga með gild­is­tíma til fimm ára sem sé í takt við þróun ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­um. Þannig verði Ísland ekki eft­ir­bátur hinna land­anna er kemur að stuðn­ingi við einka­rekna fjöl­miðla,“ segir í grein­ar­gerð með frum­varp­inu frá ráð­herra.

Lít­ill fyr­ir­sjá­an­leiki gagn­rýndur

Í umsögn um frum­varps­drög sem lögð voru fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda gagn­rýndi Árvak­­ur, útgáfu­­fé­lag Morg­un­­blaðs­ins og tengdra miðla, meðal ann­­ars að stuttur gild­is­­tími styrkja­­kerf­is­ins drægi úr fyr­ir­­sjá­an­­leika í rekstri fjöl­miðla.

„Þá er þetta sér­­­stak­­­lega óheppi­­­legt þegar um er að ræða rík­­­is­­­stuðn­­­ing við einka­rekna fjöl­miðla því að með skömmum gild­is­­­tíma eru þessi mál til stöðugrar umfjöll­unar sem getur sett frjálsa fjöl­miðla í óheppi­­­lega stöðu gagn­vart stjórn­­­völd­um, sen hafa verður í huga að meðal mik­il­vægra hlut­verka frjálsra fjöl­miðla er að veita stjórn­­­völdum aðhald,“ sagði í umsögn Árvak­urs.

Gert er ráð fyrir því árlegur kostn­aður rík­is­sjóðs vegna styrkj­anna til einka­rek­inna fjöl­miðla verði allt að 400 millj­ónir króna.

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­­­fyllir skil­yrði fyrir rekstr­­ar­­styrk úr rík­­is­­sjóði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent