„Súrrealískt“ að Ísland sé í hernaðarbandalagi með landi sem fremji „svona ógeðisverk“

Lenya Rún Taha Karim segir það súrrealískt að Ísland sé í hernaðarbandalagi með landi sem fremur „ógeðisverk“ eins og þau sem Tyrkir eru sakaðir um að hafa framið í Kúrdistan þar sem átta almennir borgarar létust í loftárás í gær.

Fjölmargir hafa fordæmt árásina og meðal þeirra er Lenya Rún Taha Karim alþingismaður.
Fjölmargir hafa fordæmt árásina og meðal þeirra er Lenya Rún Taha Karim alþingismaður.
Auglýsing

Allt var með kyrrum kjörum í ferða­manna­bænum Barakh í Kúr­distan, sjálf­stjórn­ar­hérðai Kúrda í Írak, sem liggur skammt frá landa­mærum Tyrk­lands í norð­ur­hluta lands­ins, þegar loft­árás var háð með þeim afleið­ingum að átta almennir borg­arar lét­ust og minnst 28 slös­uð­ust. Ferða­manna­bær­inn er stað­settur í fjöll­unum í Kúr­distan, þar sem einnig halda til liðs­menn Kúrdíska verka­manna­flokks­ins, sem eru á lista Tyrkja, Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­sam­bands­ins yfir hryðju­verka­sam­tök.

Tyrkir hafa um langt skeið háð stríð gegn Kúrdíska verka­manna­flokkn­um, en aldrei áður hefur slíkt mann­fall orðið á meðal almennra borg­ara. Barakh var stút­fullur af ferða­mönnum sem leitað höfðu upp til fjalla til að flýja 50 stiga hita sem víða hefur mælst í Írak und­an­farna daga.

Auglýsing

Fjöl­margir hafa for­dæmt árás­ina og meðal þeirra er Lenya Rún Taha Karim alþing­is­mað­ur, en í færslu á Twitter gagn­rýnir hún að Ísland sé í hern­að­ar­banda­lagi með landi sem fremji slík ógeðis­verk. Einnig segir hún súr­r­eal­ískt að vera hluta af þingi sem ekki hafi tekið neina sterka afstöðu gegn því „banda­menn“ Íslands geri öðrum þjóð­um, til dæmis Kúr­dum, en Lenya er sjálf af kúrdískum upp­runa. Þá bendir hún á að Banda­ríkin hafi for­dæmt árás­ina og að Ísland hljóti að geta gert það sama „fyrst við lítum svona mikið upp til þeirra“.

Ábyrgð vísað á bug

Þess skal þó getið að í þeirri yfir­lýs­ingu sem Lenya Rún vísar til, frá sendi­herra Banda­ríkj­anna gagn­vart Írak, eru Tyrkir ekki sér­stak­lega nefnd­ir, en yfir­völd í Tyrk­landi hafa vísað ábyrgð á árásinni á bug og sagt hryðju­verka­sam­tök hljóta að bera á henni ábyrgð, og önnur lönd og alþjóða­sam­tök á borð við Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa for­dæmt árás­ina án þess að nefna Tyrk­land sér­stak­lega á nafn.

Stjórn­völd í Írak eru þess þó full­viss að um tyrk­neska árás hafi verið að ræða. Tyrkir hafi ítrekað farið yfir strikið í árásum sínum innan land­svæða Kúr­distan og árásin sé alvar­legt brot gegn landamæra­helgi og full­veldi Íraks og Írak telji sig í fullum rétti til þess að bregð­ast við árásinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent