Sýn braut gegn lögum um fjölmiðla með því að auglýsa áfengi og veðmálastarfsemi

Fjölmiðlanefnd hefur gert Sýn hf. að greiða eina milljón króna í sekt vegna brota gegn lögum um fjölmiðla með því að auglýsa Viking Lite og fatnað frá Coolbet.

Um var að ræða auglýsingar í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni á Vísi.
Um var að ræða auglýsingar í hlaðvarpsþættinum Þungavigtinni á Vísi.
Auglýsing

Fjöl­miðla­nefnd hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Sýn hf. hafi brotið gegn lögum um fjöl­miðla með aug­lýs­ingum um áfengi ann­ars vegar og aug­lýs­ingum um happ­drætt­is- og veð­mála­starf­semi hins veg­ar, en um var að ræða aug­lýs­ingar í hlað­varps­þætt­inum Þunga­vigt­inni á Vísi.

Til­kynn­ing barst Fjöl­miðla­nefnd vegna máls­ins í nóv­em­ber á síð­asta ári og var athygli nefnd­ar­innar vakin á því að í hlað­varps­þætt­inum væru að finna aug­lýs­ingar fyrir Vik­ing Lite og Cool­bet og tók nefndin málið til athug­un­ar.

Auglýsing

Í ákvörðun Fjöl­miðla­nefndar kemur fram að við­skipta­boð fyrir vöru­teg­undir Vik­ing Lite, Vik­ing Lite Jóla og Vik­ing Lite Lime í hlað­varps­þætt­inum á tíma­bil­inu 30. sept­em­ber 2021 til og með 4. jan­úar 2022 hafi Sýn sem fjöl­miðla­veita brotið gegn lögum um fjöl­miðla.

Jafn­framt var það nið­ur­staða Fjöl­miðla­nefndar að aug­lýs­ingar í hlað­varps­þætt­inum á fatn­aði merktum Cool­bet væru til þess fallnar að aug­lýsa veð­mála­starf­sem­ina enda hafi umfjöllun um fatn­að­inn oft farið fram í tengslum við umfjöllun um veð­mál. Nefndin féllst ekki á sjón­ar­mið Sýnar að ein­ingus hafi um verið að ræða aug­lýs­ingu á „fata­línu“ Cool­bet, og segir í rök­stuðn­ingi Fjöl­miðla­nefndar að þekkt sé að fyr­ir­tæki og aðrir aðilar merki fatnað með vöru­merki sínu og nafni í mark­aðs­legum til­gangi. Komst nefndin því að þeirri nið­ur­stöðu að Sýn hafi einnig brotið gegn lögum um fjöl­miðla með við­skipta­boðum fyrir happ­drætt­is- og veð­mála­starf­semi.

Í til­kynn­ingu frá Fjöl­miðla­nefnd vegna máls­ins segir að ekki sé talin ástæða til þess að falla frá sekt­ar­á­kvörðun í mál­inu, enda hafi Sýn áður brotið gegn lögum um fjöl­miðla um bann við við­skipta­boðum fyrir áfengi. Taldi Fjöl­miðla­nefnd hæfi­legt að sektin næmi einni milljón króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent