Tekjur ríkisins umfram áætlanir 2014 en gjöld umfram heimildir

fjarmala-1.jpg
Auglýsing

Tekju­jöfn­uður rík­is­ins á síð­asta ári var jákvæður um 46,4 millj­arða króna. Það er betri afkoma en gert var ráð fyr­ir. Tekj­urnar voru hærri en talið var í fjár­lögum fyrir árið 2014 og mun­aði mestu um óreglu­legar tekjur eins og háar arð­greiðsl­ur, meðal ann­ars frá Lands­banka Íslands, en einnig höfðu aukin umsvif í efna­hags­líf­inu áhrif.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Lána­málum rík­is­ins. Rík­is­út­gjöld síð­asta árs voru umfram heim­ildir fjár­laga en voru sam­þykkt með fjár­auka­lög­um, þar sem meðal ann­ars var gert ráð fyrir að hluta af auknum tekjum yrði ráð­stafað í flýt­ingu á nið­ur­færslu verð­tryggðra lána.

Auglýsing


Á árinu 2014 var rík­is­sjóður með hreinan láns­fjár­af­gang sem nam um 4 pró­sent af lands­fram­leiðslu, sam­an­borið við 1,6 pró­sent láns­fjár­þörf árið áður. Er þessi nið­ur­staða hag­stæð­ari en gert var ráð fyr­ir, að því er segir í til­kynn­ing­unni. Haft er eftir Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að efna­hags­leg staða hafi verið að styrkj­ast. „Efna­hags­leg staða Íslands sem hefur verið að styrkj­ast að und­an­förnu ein­kenn­ist af stöð­ug­leika með lágri verð­bólgu, litlu atvinnu­leysi, auknum kaup­mætti og halla­lausum rík­is­rekstri. Tölu­verður hag­vöxtur hefur verið und­an­farin ár og nam hann 1,9% árið 2014. Mikil umsvif voru í hag­kerf­inu en þrátt fyrir það hefur við­skipta­jöfn­uður við útlönd verið jákvæð­ur. Öfl­ugur hag­vöxtur og aukin eft­ir­spurn í efna­hags­líf­inu hafa haft jákvæð áhrif á afkomu rík­is­sjóðs,“ segir Bjarni um nið­ur­stöður rík­is­reikn­ings. Hann segir mikla áherslu hafa verið lagða á að koma rík­is­rekstr­inum í jafn­vægi og skila afgangi í stað halla und­an­far­inna ára. „Rík­is­stjórnin hefur lagt á það höf­uð­á­herslu að ná tökum á rík­is­rekstr­inum ásamt því að minnka álögur á ein­stak­linga og atvinnu­lífið og stuðla að auk­inni fjár­fest­ingu í hag­kerf­inu. Miklu máli skiptir að styrkja stöðu rík­is­sjóðs enn frekar á næstu árum og að vinna að frek­ari lækkun rík­is­skulda sem hlut­falls af lands­fram­leiðslu.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None