Á þriðja hundrað manns taka þátt í hópmálsókn gegn Björgólfi Thor

Mál gegn fyrrum aðaleiganda gamla Landsbankans þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.

Björgólfur Thor
Auglýsing

Alls taka 207 aðilar þátt í hóp­mál­sókn á hendur Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, fjár­festi og fyrrum aðal­eig­anda Lands­banka Íslands, sem þing­fest verður fyrir hér­aðs­dómi á morg­un. Á meðal þeirra sem taka þátt í mál­sókn­inni eru Karen Mil­len, Krist­ján Lofts­son í Hval, Bolli Héð­ins­son hag­fræð­ing­ur, Svana Helen Björns­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­maður Sam­taka iðn­að­ar­ins, Líf­eyr­is­sjóður verk­fræð­inga, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna íslenskra sveit­ar­fé­laga, líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi og Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þeir sem að mál­sókn­inni standa búist við því að fleiri bæt­ist í hóp­inn. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag

Greint var frá því í júní að hópur fyrrum hlut­hafa gamla Lands­bank­ans væri búinn að stofna hóp­mál­sókn­ar­fé­lag og ætl­aði að stefna ­Björgólfi Thor fyrir að dylja raun­veru­legt eign­ar­hald sitt í bank­anum svo hann þyrfti ekki að upp­lýsa um stór­tæk lána­við­skipti sín við hann og fyrir að bregð­ast ekki við þegar yfir­töku­skylda á bank­anum mynd­að­ist á árinu 2006. Erf­ið­lega gekk að birta Björgólfi Thor stefnu í mál­inu en það hefur nú tek­ist. Í því verður ekki sóst eftir sér­stökum bótum heldur verður látið reyna á hvort bóta­skylda sé fyrir hendi. Reyn­ist hún vera fyrir hendi verður reynt að finna út hvert mögu­legt tjón hlut­haf­anna var. 

Björgólfur Thor hafnar ásök­unum hóps­ins. Hann segir mál­sókn­ina gróðra­brall lög­manna sem að henni standa og áskilur sér rétt til að sækja bætur til félags­manna í hóp­mál­sókn­ar­fé­lag­inu fyrir rangar saka­gift­ir. Félagið fékk Ragnar H. Hall hæsta­rétt­ar­lög­mann til að vinna fyrir sig lög­fræði­á­lit um þetta atriði. Nið­ur­staða hans, sam­kvæmt frá­sögn Frétta­blaðs­ins, er sú Björgólfur Thor geti ekki sótt bætur til félags­manna á þessum for­send­um. 

Auglýsing

Margra ára aðdrag­andi

Und­ir­bún­ingur máls­höfð­un­ar­innar hefur staðið frá árinu 2011 þegar heil­síðu­aug­lýs­ingar birt­ust í íslenskum dag­blöðum þar sem skorað var á hlut­hafa í gamla Lands­bank­anum að taka þátt í mögu­legri hóp­mál­sókn gegn Björgólfi Thor. Á meðal þeirra sem stóðu að und­ir­bún­ingnum var Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og lög­mað­ur­inn Ólafur Krist­ins­son. Síðan þá hefur und­ir­bún­ingur máls­höfð­un­ar­innar staðið yfir og hóp­ur­inn hefur meðal ann­ars höfðað vitna­mál á hendur Björgólfi Thor og sam­starfs­manni hans til að nálg­ast ákveðnar upp­lýs­ing­ar. Auk þess hefur hóp­ur­inn fengið gögn frá slita­stjórn gamla Lands­bank­ans við und­ir­bún­ing­inn.

Í Kast­ljósi í júní, þar sem fjallað var um mál­sókn­ina, kom fram að málið hafi verið kynnt fyrir þeim líf­eyr­is­sjóðum sem áttu hlut í Lands­bank­anum á árunum 2005 til 2008 og að þeir séu að skoða þátt­töku í mál­sókn­inni. Ný er ljóst að að minnsta kosti þrír þeirra ætla að taka þátt. Alls voru hlut­hafar í gamla Lands­bank­anum um 25 þús­und tals­ins þegar hann féll haustið 2008.

Yfir­töku­skylda og of há lán

Í umfjöllun Kast­ljós kom meðal ann­ars fram að hóp­ur­inn telji að Björgólfur Thor hafi með skipu­legum hætti, og með þátt­töku starfs­manna sinna, unnið að því að koma í veg fyrir að upp­lýs­ingar um umfang lán­veit­inga bank­ans til Björg­ólfs Thors. birt­ust opin­ber­lega. Þetta hafi verið gert með því að dylja hversu stóran hlut Björgólfur Thor hafi raun­veru­lega átt í bank­an­um.

Í stefn­unni í mál­inu kemur fram að lán Lands­bank­ans til Björg­ólfs Thor hafi verið langt umfram heim­ildir á árinu 2005 og að á árinu 2006 hafi eign­ar­hald Lands­bank­ans þjapp­ast það mikið saman að það hafi mynd­ast yfir­töku­skylda á Björgólf Thor, sem hann hafi huns­að. Með því hafi hann brugð­ist þeirri skyldu sinni að vernda lög­bundin rétt­indi minni hlut­hafa í bank­an­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None