Þrjúhundruð manns töldust heimilislaus í Reykjavík á liðnu hausti

Samkvæmt úttekt á stöðu heimilislausra í höfuðborginni er rúmlega helmingur þeirra sem teljast heimilislausir með húsnæði. Rúm þrjátíu prósent til viðbótar nýttu sér neyðargistingu og lítill hópur býr við slæmar aðstæður á víðavangi.

Rúmlega 300 manns töldust heimilislaus í Reykjavíkurborg síðasta haust.
Rúmlega 300 manns töldust heimilislaus í Reykjavíkurborg síðasta haust.
Auglýsing

Í októ­ber 2021 tald­ist 301 ein­stak­lingur heim­il­is­laus í Reykja­vík­ur­borg, sam­kvæmt úttekt á stöðu heim­il­is­lausra sem fram­kvæmd var á vel­ferð­ar­sviði borg­ar­innar undir lok síð­asta árs.

Þrjú pró­sent hóps­ins, fjórir karlar og fjórar kon­ur, voru ekki með aðgang að hús­næði af ein­hverju tagi og höfð­ust við á víða­vangi. Fimmtán karlar og sjö konur til við­bótar töld­ust í ótryggum hús­næð­is­að­stæð­um.

Rúmur helm­ingur hóps­ins eða 54 pró­sent töld­ust í hús­næði sem skil­greint er fyrir heim­il­is­lausa á vegum Reykja­vík­ur­borgar eða á áfanga eða þá í hús­næði með lang­tíma­stuðn­ing. Tæpur þriðj­ungur hóps­ins, eða 31 pró­sent, var í neyð­ar­gist­ingu fyrir heim­il­is­lausa.

Fleiri karlar telj­ast heim­il­is­lausir en kon­ur, en karlar eru 71 pró­sent heild­ar­hóps­ins. Næstum 9 af hverjum 10 heim­il­is­lausum í Reykja­vík­ur­borg eru með íslenskt rík­is­fang og um 71 pró­sent hóps­ins er á aldr­inum 21-49 ára.

Sam­an­burður við úttektir fyrri ára örð­ugur

Ekki er úti­lokað að heim­il­is­lausir í höf­uð­borg­inni séu enn fleiri en úttektin segir til um, en ein­stak­lingar sem eru heim­il­is­lausir en sækja hvergi þjón­ustu vel­ferð­ar­sviðs í mála­flokki heim­il­is­lausra gætu fallið utan úttekt­ar­inn­ar.

Í skýrslu sem lögð var fram í borg­ar­ráði í gær segir þó að á síð­asta ári hafi verið gerð breyt­ing í skrán­ingum á heim­il­is­lausum í þjón­ustu Reykja­vík­ur­borg­ar, með mið­lægri skrán­ingu á vegum Vett­vangs- og Ráð­gjafateymi (VoR) í sam­vinnu við lög­reglu, fang­els­is­mála­yf­ir­völd og heil­brigð­is­stofn­an­ir.

Skráður fjöldi heimilislausra í Reykjavík í úttektum frá 2009 til 2021. Vert er að taka fram að þessar tölur eru ekki samanburðarhæfar á milli ára, þar sem gagnasöfnun fer nú fram með öðrum hætti en áður. Mynd: Úr úttekt velferðarsviðs.

Úttektir á stöðu heim­il­is­lausra hafa áður verið gerðar árin 2009, 2012 og 2017, en þá fóru þær fram með þeim hætti að kann­anir voru sendar á þjón­ustu­mið­stöðvar borg­ar­inn­ar, Rauða krossinn, Sam­hjálp, lög­regl­una, Fang­els­is­mála­stofnun og fleiri stofn­anir og sam­tök í sam­fé­lag­inu sem hafa beina snert­ingu við hóp­inn.

Auglýsing

Nú er hins vegar komin mið­læg skrán­ing, sem í skýrslu vel­ferð­ar­sviðs er sagt leiða til þess að sviðið hafi nú yfir mun betri og mark­tæk­ari gögnum að ráða um hóp heim­il­is­lausra með miklar og flóknar þjón­ustu­þarfir en nokkru sinni fyrr. Þessu er lýst sem „bylt­ingu“ í skýrslu vel­ferð­ar­sviðs.

Með þeim fyr­ir­vara að ekki sé um sam­an­burð­ar­hæfar tölur að ræða hefur þó skráðum heim­il­is­lausum fækkað um 14 pró­sent frá árinu 2017.

Ef horft er lengra aftur hefur fjöldi skráðra heim­il­is­lausra þó auk­ist nokkuð – en árið 2009 var 121 ein­stak­lingur skráður heim­il­is­laus sam­kvæmt könnun vel­ferð­ar­sviðs borg­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent