Tilnefningarhlutverk Hæstaréttar „arfur frá gamalli tíð“ sem ætti að breyta

Dómsmálaráðherra er þeirrar skoðunar að Hæstiréttur ætti ekki að koma nálægt því að tilnefna fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkisins. Dr. Páll Hreinsson benti á að það væri óheppilegt að rétturinn tilnefndi í stjórnsýslunefndir árið 2019.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Auglýsing

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra telur að til­nefn­ingar Hæsta­réttar á full­trúum til setu í nefnd­um, ráðum og stjórnum á vegum stjórn­valda séu „arfur frá gam­alli tíð“ og að rétt væri að fela dóm­stóla­sýsl­unni að ann­ast slíkar til­nefn­ing­ar.

Hæsti­réttur Íslands er líka á þeirri skoðun að rök standi til þess að þessi verk­efni verði færð til dóm­stóla­sýsl­unn­ar, í sam­ræmi við til­lögur sem dr. Páll Hreins­son kom fram með í skýrslu sinni um sjálf­stæðar stjórn­sýslu­nefndir undir lok árs 2019.

Þetta kemur fram í svari dóms­mála­ráð­herravið fyr­ir­spurn Andr­ésar Inga Jóns­sonar þing­manns Pírata um áður­nefndar til­nefn­ingar Hæsta­rétt­ar, sem all­víða í íslenskum lögum hefur það skil­greinda hlut­verk að til­nefna full­trúa í nefndir og ráð af ýmsu tagi. Alls til­nefndi dóm­stóll­inn 25 manns í nefnd­ir, ráð eða stjórnir í fyrra.

Í svari ráð­herra segir að hún hafi beint því til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins að hafa ábend­ing­una um að betur færi á því að dóm­stóla­sýslan færi með þetta hlut­verk í huga þegar verð er að lesa yfir frum­vörp til breyt­inga á lögum þar sem þessi ákvæði er að finna.

Af hverju ætti Hæsti­réttur ekki að standa með sínum nefnd­ar­mönn­um?

Dr. Páll Hreins­son sagði í skýrslu sinni að vanda­mál gætu komið upp vegna lög­bund­ins hlut­verks Hæsta­réttar við til­nefn­ingar í stjórn­sýslu­nefnd­ir, sér­stak­lega þegar rétt­ur­inn til­nefndi alla aðal- og vara­menn í nefnd­ir.

Frá sjón­ar­horni almen­ings, skrif­aði Páll, væri þetta til þess fallið að draga mætti sjálf­stæði og óhlut­drægni Hæsta­réttar í efa þegar mál væri undir hann borið þar sem kraf­ist væri ógild­ingar stjórn­sýslu­nefnd­ar, sem rétt­ur­inn hefur til­nefnt full­trúa í.

Auglýsing

„Út frá sjón­ar­horni almennra borg­ara vaknar sú spurn­ing af hverju rétt­ur­inn skyldi ekki standa með þeim nefnd­ar­mönnum sem hann hafði slíka traust á að hann taldi sér­staka ástæðu og rök til að til­nefna þá til setu í nefnd­inn­i,“ segir í skýrslu Páls.

Dæmi um stjórn­sýslu­nefndir þar sem flestir eða allir full­trúar eru til­nefndir til setu af Hæsta­rétti eru áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála, kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála, úrskurð­ar­nefnd umhverf­is- og auð­linda­mála, kæru­nefnd úboðs­mála, yfir­fast­eigna­mats­nefnd og kæru­nefnd húsa­mála.

Í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Andr­ésar Inga segir að Hæsti­réttur leggi áherslu á að til­nefna „ávallt hæf­ustu ein­stak­ling­ana til að takast á við þau verk­efni sem óskað er til­nefn­ingar í “ og þess sé „gætt að verk­efn­unum sé dreift þannig að þau legg­ist á fleiri hend­ur“ auk þess sem leit­ast væri við að tryggja að ein­stak­lingar af báðum kynjum séu til­nefnd­ir.

33 úr HÍ og 7 úr HR frá 2003

Andrés Ingi bað sér­stak­lega um að fá sund­ur­liðun á til­nefn­ingum starfs­manna laga­deila háskól­anna í land­inu í nefnd­ir, ráð og stjórnir af hálfu Hæsta­rétt­ar. Nið­ur­staðan varð sú að frá árinu 2003 og til 20. apríl 2021 til­nefndi Hæsti­réttur 33 starfs­menn laga­deildar Háskóla Íslands til ein­hverra starfa og sjö starfs­menn laga­deildar Háskól­ans í Reykja­vík.

Þegar kemur að til­nefn­ingum Hæsta­réttar á starfs­mönnum laga­deild­anna er litið til rann­sókn­ar­sviða þeirra í lög­fræð­inni, með hlið­sjón af því verk­efni sem til­nefn­ing lýtur að, segir í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent