Trump á miklu skriði í skoðanakönnunum

h_52009579-1.jpg
Auglýsing

Auð­kýf­ing­ur­inn Don­ald Trump leiðir enn kapp­hlaupið um útnefn­ingu Repúblik­ana sem for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins.

Sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun CNN frétta­stöðv­ar­innar sem birt var í dag, sögð­ust 18 pró­sent aðspurðra kjós­enda Repúblik­ana styðja Trump og þá nýtur Jeb Bush stuðn­ings 15 pró­senta aðspurðra. Scott Wal­ker, rík­is­stjóri Wiscons­in, kom þriðji með tíu pró­senta stuðn­ing.

Fylgi Trumps jókst um heil sex pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun CNN, sem fram­kvæmd var í síð­asta mán­uði, á meðan fylgi keppi­nauta hans hefur hald­ist stöðugt.

Auglýsing

Þrátt fyrir nið­ur­stöður skoð­ana­kann­anna er alls óvíst hvort Trump hlýt­ur út­nefn­ingu Repúblika ­sem for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins, en miðað við fylgi hans í skoð­ana­könn­unum virð­ist hann njóta tölu­verðra vin­sælda á meðal flokks­systk­inna sinna. Þá vilja 52 pró­sent aðspurðra Repúblik­ana að Trump fari alla leið, og þá vilja 42 pró­sent stuðn­ings­manna ann­arra fram­bjóð­enda að Trump haldi áfram kosn­inga­bar­átt­unni.

Í skoð­ana­könnun NBC sjón­varp­stöðv­ar­innar sem fram­kvæmd var á meðal kjós­enda í New Hamps­hire, og var sömu­leiðis birt í dag, nýtur Trump stuðn­ings 21 pró­sents aðspurðra Repúblik­ana. Þar styðja enn­fremur 14 pró­sent Bush og 12 pró­sent myndu kjósa Wal­ker.

Í sams­konar könnun NBC í Iowa leiðir Wal­ker kosn­inga­bar­átt­una með 19 pró­sent, og Trump nýtur stuðn­ings 17 pró­senta aðspurðra kjós­enda Repúblikana­flokks­ins.

Þá sýnir enn ein skoð­ana­könn­unin hversu vel Trump stendur að vígi, en sam­kvæmt könnun You­Gov nýtur banda­ríski fast­eigna­mó­gúll­inn stuðn­ings 28 pró­senta kjós­enda Repúblikana­flokks­ins á lands­vísu.

Eins og áður segir bætir Trump við fylgi sitt á milli skoð­ana­kann­anna, og það þrátt fyrir gríð­ar­lega umdeild ummæli sín um John McCain, þegar hann sagði að öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn væri ekki stríðs­hetja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None