Tuttugu einstaklingar skulda LÍN 663 milljónir

14131793324_882160158e_c.jpg
Auglýsing

Þeir tutt­ugu ein­stak­lingar sem skulda Lána­sjóði íslenskra náms­manna mest, og hafa klárað nám og hafið end­ur­greiðsl­ur, skulda sam­an­lagt 663 millj­ónir króna. Hæsta ein­staka lánið er 47,2 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í árs­skýrslu LÍN.

Tólf af þessum tutt­ugu ein­stak­lingum luku dokt­ors­námi, þar af sjö í Banda­ríkj­unum og fimm í Bret­landi. Hinir átta luku meist­ara­námi, sjö í Banda­ríkj­unum og einn í Bret­landi. Með­al­staða náms­lána­skuldar þeirra er í dag 33,1 millj­ónir króna, en sem fyrr segir er hæsta lánið 47,2 millj­ón­ir. Á síð­ustu átta árum hafa þessir ein­stak­lingar borgað um 19,5 millj­ónir króna af lánum sín­um, sem gera um 2,4 millj­ónir á ári. Það þýðir að hver greið­andi greiddi um 120 þús­und krónur að með­al­tali á ári. Þó kemur fram í árs­skýrsl­unni að nokkrir þess­ara ein­stak­linga hafi ekk­ert borgað af náms­lána­skuldum sín­um.

Tutt­ugu hæstu lánin hjá þeim sem eru enn í námi eða hafa nýlokið því og eru ekki byrj­aðir að borga til baka nema tæp­lega 507 millj­ónum króna. Átta þess­ara ein­stak­linga eru í dokt­ors­námi, fjórir í meist­ara­námi og tveir eru í grunn­námi í Englandi og Banda­ríkj­un­um. Sex ein­stak­lingar eru í lækn­is­fræði­námi í Ung­verja­landi.

Auglýsing

Ekki er óal­gengt að ein­stak­lingar skuldi meira en tutt­ugu millj­ónir króna í náms­lán og þeim fer fjölg­andi sem skulda þrjá­tíu millj­ónir eða meira.

Ójöfn dreif­ing láns­upp­hæða og þeir sem fá mest borga minna til baka



Fyr­ir­komu­lagið á end­ur­greiðslum náms­lána tryggir lága greiðslu­byrði, af því að greitt er ákveðið fast hlut­fall af tekj­um. Í árs­skýrsl­unni kemur fram að að með­al­tali felst helm­ings eft­ir­gjöf á lánum sem eru á bil­inu 7,5 til 10 millj­ónir króna. „Fer sá rík­is­styrkur sem felst í náms­láni í formi affalla og hag­stæðra vaxta­kjara af lán­inu hækk­andi eftir því sem fjár­hæð náms­láns er hærri.“

Lána­sjóð­ur­inn lét gera skýrslu um fjár­hags­legar áhættur sínar og þar var meðal ann­ars skoðuð dreif­ing á láns­upp­hæð­um. Í ljós koma að dreif­ingin er mjög ójöfn. Sá fimmt­ungur lán­þega sem skuldar mest hjá lána­sjóðnum skuldar sam­tals um 102 millj­arða, eða tæp­lega helm­ing af öllum útlán­um. ­Upp­hæðin sem vænst er að fáist til baka er hins vegar 43 millj­arð­ar, eða um 42 pró­sent af heild­ar­skuld­inni. Efstu fimm pró­sentin skulda 37 millj­arða, en vænst er að um 11 millj­arðar eða 30 pró­sent fáist til baka.

Hins vegar eru skuldir þess fimmt­ungs sem skuldar minnst um sjö millj­arðar króna og 90 pró­sent af þeirri upp­hæð mun borg­ast til baka.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None