„Tveggja milljarða kapallinn“ snúist um að fjárfesta í Framsókn

Þingmaður Viðreisnar bar saman kostnað við fjölgun ráðuneyta við kostnað þess að reisa nýjan íþróttaleikvang á þingi í gær. Hún sagði m.a. að „tveggja milljarða kapallinn“ snerist ekki um að fjárfesta í fólki heldur að fjárfesta í Framsókn.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar fjall­aði um fjölgun ráðu­neyta undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær en nýju ráðu­neytin tóku þá til starfa og eru þau nú tólf tals­ins.

„Kap­all­inn og tvö ný ráðu­neyti hafa í för með sér rask, miklar til­fær­ingar starfs­manna og tafir og þetta kostar,“ sagði hún og vitn­aði í Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þegar hann sagði að ljóst væri að með því að stofna nýtt ráðu­neyti, fleiri en eitt, þá myndi verða kostn­aður – og hann gæti hlaupið á hund­ruðum millj­óna króna.

Benti hún jafn­framt á að sam­kvæmt svari frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu lægi sá kostn­aður nú fyrir en hann verður að lág­marki 1,8 millj­arð­ar. „Ekki nokkur hund­ruð millj­ónir heldur um tveir millj­arðar og sá kostn­aður getur sam­kvæmt svar­inu orðið enn hærri. Tveggja millj­arða kap­all­inn snýst, eins og við vitum öll hér inni, ekki um að fjár­festa í fólki og byggir ekki á grein­ingum á þörf eða fjár­fest­ingum í innvið­um. Hann snýst um að fjár­festa í Fram­sókn,“ sagði hún.

Auglýsing

Senni­lega heims­meist­arar í fjölda ráðu­neyta

Þor­björg setti töl­urnar í sam­hengi. „Ég ætla að setja þær hallir sem stjórnin er að reisa sjálfri sér í sam­hengi við þá höll sem nú hefur verið talað dálítið um í sam­hengi við góðan árangur Íslands í hand­bolta. Ekk­ert íþrótta­hús á Íslandi upp­fyllir í dag þau skil­yrði sem gerð eru í alþjóða­keppn­um. Hand­bolt­inn og körfu­bolt­inn hafa verið á und­an­þágu og standa jafn­vel frammi fyrir því að lands­leikir verði spil­aðir á erlendri grundu. Í skýrslu starfs­hóps um þjóð­ar­leik­vang fyrir inn­íþrótt­ir, sem er frá sept­em­ber 2020, er kostn­að­ar­grein­ing þar sem fram kemur að höll fyrir 5.000 áheyr­endur myndi kosta um 6,3 millj­arða, höll fyrir 8.600 áheyr­endur um 7 millj­arða.

Eftir glæsi­legan árangur strák­anna í hand­bolt­anum er draum­ur­inn um að kom­ast enn lengra á stór­móti í aug­sýn. Ný höll ætti að vera það líka en er það ekki. Þangað til verðum við kannski að láta okkur nægja að senni­lega erum við heims­meist­arar í fjölda ráðu­neyta,“ sagði hún að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent