Ulf Kristersson til fundar við Erdogan um fullgildingu aðildar Svíþjóðar að NATO

Forsætisráðherra Svíþjóðar og Tyrklandsforseti ætla að hittast í Ankara á næstunni til að ræða fullgildingu aðildar Svía að NATO. Katrín Jakobsdóttir segir að samstarf Norðurlandanna á sviði öryggismála muni eflast við inngöngu Svíþjóðar og Finnlands.

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, á leiðtogafundi Norðurlandaráðs í Helsinki.
Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, á leiðtogafundi Norðurlandaráðs í Helsinki.
Auglýsing

Ulf Kristers­son, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóð­ar, mun fara til fundar við Recep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­for­seta á næst­unni til að ræða full­gild­ingu aðildar Sví­þjóðar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO). Sanna Mar­in, for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands, segir að það sé undir Tyrkjum og Ung­verjum komið hvenær umsóknin verði full­gild.

Þetta var meðal þess sem fram kom á blaða­manna­fundi for­sæt­is­ráð­herra Norð­ur­land­anna í Helsinki í Finn­landi í morgun þar sem þing Norð­ur­landa­ráðs stendur yfir.

Auglýsing
Forsætisráðherrar Sví­þjóð­ar, Nor­egs, Íslands og Finn­lands, auk leið­toga stjórn­valda frá Álandseyj­um, sátu fyrir svörum á fund­inum þar sem fátt annað en umsókn­ar- og aðild­ar­ferli Sví­þjóðar og Finn­lands að NATO komst að. Mette Frederiksen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merk­ur, er ekki við­stödd þingið þar sem þing­kosn­ingar fara fram þar í landi í dag.

Mik­il­vægi Norð­ur­land­anna í örygg­is­málum mun aukast með aðild Sví­þjóðar og Finn­lands

Kristers­son sagði ferlið hafa gengið hratt og þakk­aði hann hinum Norð­ur­lönd­unum fyrir ómet­an­legan stuðn­ing við aðild­ar­ferl­ið. Að hans mati mun full­gild­ing umsókna Sví­þjóðar og Finn­lands auka mik­il­vægi Norð­ur­land­anna þegar kemur að örygg­is­mál­um.

Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar. Mynd: Norðurlandaráð

Tvær vikur eru síðan Kristers­son tók við sem for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóð­ar. Full­gild­ing aðildar að NATO er meðal stórra verk­efna sem hann stendur frammi fyrir og var eitt af hans fyrstu verkum að ræða við Erdogan Tyrk­lands­for­seta um umsókn Sví­þjóð­ar.

Aðeins Tyrk­land og Ung­verja­land eiga eftir að sam­þykkja umsókn­irnar en hin aðild­ar­ríkin 28 hafa öll veitt sam­þykki. Ísland var með fyrstu ríkj­unum sem sam­þykkti aðild ríkj­anna þann 5. júlí.

Kristers­son og Erdogan ræddu saman sím­leiðis á dög­unum þar sem þeir ákváðu að hitt­ast í Ankara sem fyrst og ræða umsókn Sví­þjóðar að NATO. Nákvæm dag­setn­ing liggur hins vegar ekki enn fyr­ir.

Meðal þess sem Kristers­son og Erdogan munu ræða er að öllum lík­indum krafa tyrk­neskra yfir­valda um fram­sal níu meintra „hryðju­verka­manna“ frá Sví­þjóð og sex frá Finn­landi til Tyrk­lands. Á fundi sendi­nefndar Finn­lands í Ankara í síð­ustu viku full­yrtu full­trúar í sendi­nefnd Tyrk­lands að um væri að ræða „hryðju­verka­menn“ sem til­heyra flokki aðskiln­að­ar­sinna Kúrda í Tyrk­landi (PKK) og Gülen-hreyf­ing­unni, flokkum sem eru gagn­rýnir á stjórn­völd í Tyrk­landi.

„Ekki undir okkur komið hvenær Ung­verja­land og Tyrk­land sam­þykkja aðild“

Sanna Mar­in, for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands, hefur ekki óskað eftir fundi með Erdogan en hún von­ast til að ferl­inu ljúki sem fyrst. „Það er ekki undir okkur komið hvenær Ung­verja­land og Tyrk­land sam­þykkja aðild, auð­vitað vonum við að það verði sem allra fyrst. Öll hin ríkin hafa sam­þykkt aðild og gerðu það fljótt, sem und­ir­strikar að Finn­land og Sví­þjóð eru reiðu­búin að ger­ast aðild­ar­ríki eins fljótt og mögu­legt er,“ sagði Mar­in.

Aðspurð hvort ríkin verði til­búin til að ganga að kjarn­orku­stefnu NATO, eða hvort Svíar og Finnar muni fara að for­dæmi Nor­egs og Dan­merkur og leyfa ekki kjarn­orku­vopn í ríkj­unum á frið­ar­tím­um, segir Sanna for­gangs­málið að fá aðild­ar­um­sóknir ríkj­anna sam­þykktar að fullu. „Við viljum ekki loka neinum dyrum en við erum ekki að ræða þetta sér­stak­lega á þessu stig­i,“ sagði Mar­in.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra við finnska þinghúsið í morgun ásamt Veronicu Thörnroos, leiðtoga Álandseyja, Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands, Ulf Kristerssen, forsætisráðherra Svíþjóðar og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs. Mynd: Norðurlandaráð

Umsóknir ríkj­anna tveggja voru sam­þykktar á leið­toga­fundi NATO í sum­ar. Finnar hafa upp­fært sína lög­gjöf og Svíar hafa lagt fram breyt­ingar á lög­gjöf sinni.

Sauli Niini­stö, for­seti Finn­lands, hefur sagt að það komi ekki til greina að aðskilja umsóknir Finn­lands og Sví­þjóðar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. Kristers­son tekur í sama streng og segir að það sé mik­il­vægt að Sví­þjóð og Finn­land fylgist að í ferl­inu.

Átak­an­legar afleið­ingar stríðs­ins sem hefur áhrif á okkur öll

Umsókn ríkj­anna að NATO er til komin vegna stríðs­ins í Úkra­ínu. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á blaða­manna­fund­inum að frá því að inn­rás Rússa í Úkra­ínu hófst í febr­úar hafi hún, og afleið­ingar henn­ar, haft áhrif á öll sam­töl leið­toga Norð­ur­land­anna.

Katrín sagði stjórn­mála­lands­lagið gjör­breytt frá því að Norð­ur­landa­þingið kom síð­ast saman í nóv­em­ber fyrir ári síð­an. „Hræði­legt stríð hefur nú staðið yfir í Úkra­ínu í 250 daga með átak­an­legum afleið­ingum fyrir fólkið í Úkra­ínu auk áhrifa á okkur öll, á örygg­is­mál, orku­mál, efna­hags­mál og fæðu­ör­yggi um heim all­an.“ Líkt og Kristers­son er Katrín sann­færð að aðild Finn­lands og Sví­þjóðar að NATO muni gera sam­starf Norð­ur­land­anna enn nán­ara á sviði örygg­is­mála.

Búast má við að umsókn Sví­þjóðar og Finn­lands að NATO verði áfram til umræðu á þingi Norð­ur­landa­ráðs sem stendur yfir fram á fimmtu­dag. Fram­­tíð­­ar­hlut­verk Norð­­ur­landa í heim­inum verður þema þings­ins í ár þar sem áhersla verður lögð á örygg­is­á­skor­an­ir, stríðið í Úkra­ínu og orku- og lofts­lags­vána.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent