Umboðsmaður vill fá skýrari svör frá innanríkisráðherra

hannabirna.jpg
Auglýsing

Umboðs­maður Alþingis hefur sent Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra og Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur inn­an­rík­is­ráð­herra sitt­hvort bréfið vegna leka­máls­ins. Bréfið til Sig­mundar Dav­íðs er vegna siða­reglna ráð­herra. Hitt bréfið er sent til inn­an­rík­is­ráð­herra vegna þess að umboðs­manni finnst svör Hönnu Birnu við spurn­ingum sem hann sendi henni í síð­ustu viku ekki full­nægj­andi.  Hanna Birna hefur til 15. ágúst að svara bréf­inu. Í því bréfi segir m.a.:

 

„Ít­rekuð er ósk um að umboðs­manni verði afhent þau gögn sem til eru um þessa fundi, gögn sem lögð voru fram eða stuðst við á þessum fund­um, þ.m.t. um fund­ar­efni, boðun þeirra og skrán­ingu frá fund­un­um. Minnt skal á að sam­kvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 85/1997, um umboðs­mann Alþing­is, er stjórn­völdum skylt að afhenda umboðs­manni umbeðin gögn og um með­ferð þeirra og þagn­ar­skyldu fer eftir 8. gr. sömu laga.

Auglýsing

[...]



Í svar­inu kemur fram að ráð­herra hafi átt fjóra fundi með lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á tíma­bil­inu frá því rann­sókn sú sem vísað er til í bréf­inu hófst í febr­úar sl. Ítrekuð er ósk umboðs­manns að upp­lýst verði hvenær þessir fundir fóru fram.





[...]


 


Með til­liti til þess sem fram kemur í svar­bréf­inu er óskað eftir að umboðs­manni verði afhent afrit af þeim gagna- og rann­sókn­ar­beiðnum lög­reglu sem beint var til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins eftir að áður­nefnd rann­sókn hófst í febr­úar sl. Jafn­framt er óskað eftir að upp­lýst verði hvenær ein­stökum beiðnum var svarað af hálfu ráðu­neyt­is­ins og umbeðin gögn látin í té. Tekið er fram að ekki er óskað eftir afriti af þeim gögnum sem ráðu­neytið kann að hafa afhent lög­regl­unni.





[...]


 


Reglur um skrán­ingu form­legra sam­skipta í Stjórn­ar­ráði Íslands voru settar af for­sæt­is­ráð­herra hinn 20. des­em­ber 2013 á grund­velli 2. mgr. 11. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórn­ar­ráð Íslands. Reglur þessar eru nr. 1200/2013 og voru birtar í B-deild Stjórn­ar­tíð­inda sem kom út 30. des­em­ber 2013 og öðl­uð­ust þegar gildi. Í regl­unum er kveðið á um að skrá skuli í mála­skrá ráðu­neytis form­leg sam­skipti og form­lega fundi milli ráðu­neyta og við aðila utan stjórn­ar­ráðs­ins. Í 3. og 4. tölul. 1. gr. er fjallað um sam­töl og fundi. Í ljósi þess sem fram kemur í svari yðar, fr. inn­an­rík­is­ráð­herra, um það hvað hafi borið á góma í sam­skiptum yðar við lög­reglu­stjór­ann og um upp­lýs­inga­öflun lög­regl­unnar frá ráðu­neyt­inu óskar umboðs­maður eftir að hann verði upp­lýstur um hvað af þessum sam­skipt­um, þ.e. fundir og sím­töl, hafi verið skráð í sam­ræmi við reglur nr. 1200/2013 og ef það var ekki gert hverjar hafi verið ástæður þess."






Lestu bæði bréfin í heild sinni hér.

 

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None