Verðbólgan þokast upp í fyrsta skipti síðan í júlí – mælist nú 9,4 prósent

Verðbólga mælist nú 9,4 prósent á ársgrundvelli eftir að hafa mælst 9,3 prósent í síðasta mánuði.

Verðbólga mælist nú 9,4 prósent.
Verðbólga mælist nú 9,4 prósent.
Auglýsing

Vísi­tala neyslu­verðs hækkar um 0,67 pró­sent frá sept­em­ber­mán­uði og mælist tólf mán­aða verð­bólga á Íslandi því 9,4 pró­sent, eftir að hafa mælst 9,3 pró­sent í síð­asta mán­uði, en þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Hag­stof­unni í dag.

Þetta er í fyrsta sinn frá því í júlí sem verð­bólgu­töl­urnar hækka, en þá mæld­ist tólf mán­aða hækkun vísi­tölu neyslu­verðs 9,9 pró­sent. Síðan þá hefur tólf mán­aða verð­bólga þok­ast niður á við.

Sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar voru helstu áhrifa­þættir hækk­un­ar­innar á vísi­tölu neyslu­verðs í októ­ber þeir að verð á mat­vælum hækk­aði um 1,6 pró­sent í mán­uð­in­um. Mun­aði þar að sögn Hag­stof­unnar mestu um lamba­kjöt, sem hækk­aði um 16,2 pró­sent á milli mán­aða. Kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði (reiknuð húsa­leiga) hækk­aði um 0,8 pró­sent.

Auglýsing

Seðla­banki Íslands hefur hækkað stýri­vexti nokkuð skarpt und­an­farið til að reyna að vinna gegn verð­­­bólgu. Þeir eru nú komnir í 5,75 pró­­­sent en voru 0,75 pró­­­sent í maí í fyrra. Í Pen­inga­­­málum Seðla­­­bank­ans, sem birt voru í ágúst, kom­ fram að bank­inn reikn­aði með því að verð­­­bólgan yrði komin í 10,8 pró­­­­sent fyrir árs­­­­lok.

Síð­asta vaxta­hækkun bank­ans var í upp­hafi þessa mán­að­ar, en þá voru stýri­vextir færðir upp um 0,25 pró­sentu­stig. Í yfir­­lýs­ingu Pen­inga­­stefn­u­­nefndar sem þá var birt sagði að vís­bend­ingar væru um að vaxta­hækk­­­anir und­an­farin mis­s­eri hefðu hægt á vexti almennrar eft­ir­­spurnar og umsvifum á hús­næð­is­­mark­aði frá því að nefndin kom síð­ast saman í ágúst.

„Und­ir­liggj­andi verð­­bólga jókst hins vegar milli funda. Þá eru vís­bend­ingar um að verð­­bólg­u­vænt­ingar séu farnar að lækka á ný þótt þær séu enn yfir verð­­bólg­u­­mark­miði bank­ans,“ sagði í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­inn­ar, sem sagð­ist áfram ætla að tryggja að taum­hald pen­inga­stefn­unnar væri nægj­an­legt til að ver­bólga hjaðn­aði í mark­mið innan ásætt­an­legs tíma.

„Pen­inga­­stefnan mun á næst­unni ráð­­ast af þróun efna­hags­um­­svifa, verð­­bólgu og verð­­bólg­u­vænt­inga. Ákvarð­­anir í atvinn­u­lífi, á vinn­u­­mark­aði og í rík­­is­fjár­­­málum munu skipta miklu um þróun vaxta á næstu mis­s­er­um,“ sagði nefnd­in.

Næsta vaxta­á­kvörðun bank­ans er 23. nóv­em­ber.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent