Verksmiðjum lokað og mikill uppskerubrestur blasir við

Hitabylgja sumarsins hefur haft gríðarleg áhrif á stórum landsvæðum í Kína. Rafmagn er skammtað og algjörum uppskerubresti hefur þegar verið lýst yfir á nokkrum svæðum.

Í sumar hafa tugir borga í Kína lýst yfir hættuástandi vegna hita.
Í sumar hafa tugir borga í Kína lýst yfir hættuástandi vegna hita.
Auglýsing

Verk­smiðjum í suð­vest­ur­hluta Kína hefur verið lokað vegna þurrka. Miðl­un­ar­lón vatns­afls­virkj­ana á svæð­inu eru hálf­tóm og orku­vinnsla því í lág­marki.

Verk­smiðjum sem fram­leiða sól­ar­raf­hlöð­ur, sem­ent og fleira sem mik­il­vægt þykir að nota í nútíma­sam­fé­lagi, hefur verið lokað eða veru­lega dregið úr fram­leiðslu þeirra. Skammta þarf raf­magn í Sichu­an-hér­aði vegna þurrkanna. Gríð­ar­leg hita­bylgja hefur geisað í Kína síð­ustu vikur og vegna hennar hefur raf­orku­notkun aukist, m.a. vegna þess að bún­aður til loft­kæl­ingar er keyrður af krafti alla daga. Þess er kraf­ist að heim­ili fari fremst í for­gangs­röð­un­ina þegar kemur að því að skammta raf­magn á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti.

Auglýsing

Heims­far­ald­ur­inn og aðgerðir sem gripið var til vegna hans hafði mikil áhrif á efna­hag Kína líkt og fleiri landa. Verk­smiðjur lands­ins fram­leiða marg­vís­legar afurðir sem seldar eru um allan heim. Fram­leiðsla dróst saman í far­aldr­inum af ýmsum ástæð­um. Eft­ir­spurn minnk­aði og sam­komu­tak­mark­anir höfðu einnig áhrif. Á heims­vísu fóru líka flutn­ingar á sjó og í lofti úr skorðum og enn hafa þær ekki kom­ist að fullu í samt horf eftir að far­ald­ur­inn fór undan að láta.

Kín­verjar hafa svo farið nokkuð aðra leið en flestar þjóðir síð­ustu mán­uði vegna nýrra smit­bylgja af COVID-19. Stjórn­völd hafa tekið mun harðar á útbreiðsl­unni en þekk­ist á Vest­ur­lönd­um. Sett hafa verið á útgöngu­bönn og fleira í kunn­ug­legum dúr. Útlit var fyrir að efna­hags­lífið væri að fær­ast í samt horf en COVID-að­gerðir nú í sumar hafa sett strik í þann reikn­ing svo um mun­ar.

Hag­vöxtur var 2,5 pró­sent í Kína á fyrstu sex mán­uðum árs­ins sem er innan við helm­ingur af því sem áætlað var.

Þurrk­arnir í Kína hafa ekki aðeins haft áhrif á raf­orku­vinnslu og þar af leið­andi fjöl­margar verk­smiðjur sem stóla á raf­magn í stórum stíl til sinnar fram­leiðslu. Neyslu­vatn er líka af skornum skammti svo grípa hefur þurft til neyð­ar­að­gerða til að reyna að tryggja vatns­birgðir á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti.

Hund­ruð þús­unda hekt­ara af marg­vís­legri upp­skeru hefur skrælnað í hit­unum og þurrk­unum í mið- og norð­ur­hluta Kína, segir í frétt Al Jazeera. Svo alvar­legt er ástandið að á sumum stöðum hefur verið lýst yfir algjörum upp­skeru­bresti.

Ekk­ert lát er á hit­un­um. Áfram er spáð um 40 stiga hita á nokkrum svæð­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent