„Viðreisn er bara Viðreisn“

Formaður Viðreisnar segir að það hvarfli hvorki að sér né nokkrum öðrum sem starfar fyrir flokkinn að hann sameinist öðrum stjórnmálaflokki. „Ekki á minni vakt,“ segir Þorgerður Katrín. Viðreisn sé komin til að vera.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar segir að það hvar­fli hvorki að sér né öðrum sem starfa fyrir flokk­inn að það ger­ist nokkurn tím­ann að Við­reisn gangi til liðs við ein­hvern annan stjórn­mála­flokk. „Ekki á minni vakt,“ skrifar Þor­gerður Katrín í aðsendri grein á Vísi í dag.

Þar ræðir hún svör sín við spurn­ingu Páls Magn­ús­son­ar, frá­far­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þátta­stjórn­anda á Hring­braut, sem Kjarn­inn sagði frá í gær. Páll spurði Þor­gerði í þætti sín­um, sem birt­ist á mið­viku­dags­kvöld, hvort hún teldi lík­legt að Við­reisn myndi ein­hvern tím­ann sam­ein­ast Sjálf­stæð­is­flokkn­um.

„Mér hefur greini­lega fund­ist spurn­ingin sér­kenni­leg, það sér­kenni­leg að ég taldi hana lúta að sam­starfi á milli flokk­anna. Og svar­aði þar um að mál­efni okkar um Evr­ópu­sam­vinnu, geng­is­stöð­ug­leika, öfl­ugt heil­brigð­is­kerfi og kerf­is­breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi væru á odd­inum og það væri það sem gilti. En ég myndi auð­vitað aldrei úti­loka neitt, þó mér þætti ansi langt í land hjá Sjálf­stæð­is­flokknum að gang­ast undir þessi prinsipp okk­ar. Ef horft er á þátt­inn er aug­ljóst að mál­efna­á­grein­ingur okkar er djúp­ur. En úr þessu voru samt sem áður spunnar fréttir um að ég úti­lok­aði ekki sam­runa við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Fyr­ir­sjá­an­legt? Já. Ekki síst rétt fyrir kosn­ing­ar,“ skrifar Þor­gerður Katrín í grein sinni í dag.

Auglýsing

Hún segir að nær­tækara hefði verið fyrir þátt­ar­stjórn­and­ann Pál að spyrja Bjarna Bene­dikts­son, for­manns Sjálf­stæð­is­flokks, sem var einnig gestur þátt­ar­ins, að því hvort hann hygð­ist sam­ein­ast Mið­flokkn­um. Eða Vinstri græn­um, eins og Sig­mar Guð­munds­son fram­bjóð­andi Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi sagði reyndar í gær að væri nær lagi en að Við­reisn sam­ein­að­ist Sjálf­stæð­is­flokki.

„Þar liggur hið sam­eig­in­lega íhalds­meng­i,“ skrifar Þor­gerður Katrín.

For­mað­ur­inn segir að það virð­ist vera „upp­á­halds sam­kvæm­is­leikur margra að skil­greina Við­reisn“ sem ýmist „litla Sjálf­stæð­is­flokk­inn eða litlu Sam­fylk­ing­una.“

„En Við­reisn er bara Við­reisn. Punkt­ur.“

Um 30 pró­sent kjós­enda Við­reisnar árið 2016 komu frá Sjálf­stæð­is­flokki

Í grein sinni á Vísi vísar Þor­gerður Katrín til orða Ólafs Þ. Harð­ars­son­ar, pró­fess­ors í stjórn­mála­fræði, sem gerði það að umtals­efni á Face­book í gær, í hóp sem heitir Algjör­lega óáhuga­verðar stjórn­mála­upp­lýs­ing­ar, að það væri „mikil ein­föld­un“ að tala um að Við­reisn væri klofn­ings­flokkur úr Sjálf­stæð­is­flokki.

Ólafur Þ Harðarson prófessor í stjórnmálafræði.

„Þegar Við­reisn bauð fyrst fram 2016 komu rúm 30% kjós­enda flokks­ins frá Sjálf­stæð­is­flokki en tæp 30% frá Sam­fylk­ingu - og afgang­ur­inn frá öðrum flokkum (auk nýrra kjós­enda). Íslenska kosn­inga­rann­sóknin sýnir að bæði 2016 og 2017 töldu íslenskir kjós­endur að Við­reisn væri mun nær miðj­unni en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á hægri-vinstri kvarða. Til sam­an­burðar má nefna að Borg­ara­flokkur Alberts Guð­munds­sonar 1987 var rétt­nefndur klofn­ings­flokkur úr Sjálf­stæð­is­flokki. Þá komu um 70% kjós­enda Borg­ara­flokks frá Sjálf­stæð­is­flokki. Kjós­endur settu Borg­ara­flokk líka miklu nær Sjálf­stæð­is­flokki á hægri-vinstri kvarða 1987 en þeir setja Við­reisn nú,“ skrif­aði Ólaf­ur, sem fór einnig yfir að við­horf kjós­enda Við­reisnar væru líka mjög frá­brugðin við­horfum kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Við­reisn­ar­kjós­endur voru miklu meiri opin­gátt­ar­menn í alþjóða­málum en kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks. Þeir voru miklu síður hlynntir lítt heftum mark­aði en kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks. Ágrein­ingur kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar er ekki bara um Evr­ópu­sam­band­ið,“ skrif­aði Ólaf­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent