Vilja endurheimta náttúru- og dýralíf Lundúna

Gangi metnaðarfull áform borgarstjóra Lundúna eftir gæti almenningsgarðurinn Hyde Park orðið heimkynni villtra dýra á borð við bjóra og förufálka á ný.

Býfluga safnar safa úr blómum í Hyde Park.
Býfluga safnar safa úr blómum í Hyde Park.
Auglýsing

Sadiq Khan, borg­ar­stjóri Lund­úna, vill auka nátt­úru­líf borg­ar­innar með því að gera almenn­ings­garða „villta“ á ný og hvetja fólk til að þöku­leggja þök húsa sinna. Unnið verður að verk­efn­inu í sam­starfi við breska umhverf­is­ráðu­neyt­ið. Ben Goldsmith ráð­herra umhverf­is­mála segir að gangi þessar fyr­ir­ætl­anir eftir verði fleiri villtar teg­und­ir, bæði gróður og dýr, í borg­ar­land­inu.

Í frétt The Guar­dian um málið segir að Khan hafi tryggt verk­efn­inu 600 þús­und pund en það er hluti af því mark­miði að ná kolefn­is­hlut­leysi í London. Meira fé þarf til og mun verk­efn­is­stjórn sem skipuð hefur verið leita fram­laga frá einka­að­il­um.

Auglýsing

„Allt fólk þarf að finna náin tengsl við nátt­úr­una en þetta er langt í frá raun­veru­leiki margra Lund­úna­búa í dag,“ hefur Guar­dian eftir Goldsmith. Til að end­ur­heimta „nátt­úru borg­ar­innar okk­ar,“ segir Goldsmith, munu lækir renna á ný, varp­kössum komið upp fyrir fugla og önnur dýr og teg­undum sem eitt sinn bjuggu á því svæði sem London hefur risið og breitt úr sér á verður komið þar fyrir á ný.

1.600 reitir í London, eða um 20 pró­sent borg­ar­lands­ins, hafa verið skil­greindir sem nátt­úru­svæði. Á þessum svæðum má m.a. finna alla helstu almenn­ings­garða en talið er að nátt­úran eigi undir högg að sækja í um helm­ingi þeirra.

Bjórar gætu aftur sést í Hyde Park í framtíðinni. Mynd: EPA

Í verk­efni Khan og Goldsmiths verður ein­blínt á 20-30 þess­ara svæða og m.a. reynt að koma þar aftur upp stofnum föru­fálka, hjart­ar­bjalla og stúf­músa. Mark­mið borg­ar­stjór­ans er að allir Lund­úna­búar búi í innan við tíu mín­útna göngu­fjar­lægð frá grænum svæð­um. Ef vel tekst til er talið að hægt verði að draga úr loft­mengun og flóða­hættu.

Khan hefur minnt á að nær hvergi í heim­inum hafi verið gengið meira á ósnortna nátt­úru en í Bret­landi. „Við verðum að taka djarfar ákvarð­anir í London til að tryggja að við ekki aðeins hægjum á hnignun líf­fræði­legs fjöl­breyti­leika í umhverf­inu heldur að við und­ir­búum jarð­veg­inn fyrir vöxt og breyt­ing­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent