Vill að farið verði í heildarendurskoðun á áfengislögum

Þingmaður Framsóknarflokksins segist vera hlynntur frelsi með ábyrgð og telur mikilvægt að farið verði í heildarendurskoðun á áfengislögum með það að markmiði að taka tillit til samkeppnissjónarmiða en einnig þeirra sjónarmiða er snúa að forvörnum.

Jóhann Friðrik Friðriksson þingmaður Framsóknarflokksins.
Jóhann Friðrik Friðriksson þingmaður Framsóknarflokksins.
Auglýsing

Jóhann Frið­rik Frið­riks­son þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins gerði áfeng­is­lögin að umræðu­efni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Hann hóf ræðu sína á að segja að eitt­hvert vin­sælasta við­fangs­efni á þing­inu ár eftir ár sneri að áfeng­is­lög­gjöf­inni í land­inu.

„Eng­inn þarf að velkj­ast í vafa um þá stað­reynd að áfengi er alls ekki eins og hver önnur vara. Heilsu­fars­legur og sam­fé­lags­legur skaði af áfeng­is­neyslu er gríð­ar­legur og veldur umtals­vert meiri skaða en öll önnur vímu­efni, enda eina lög­lega vímu­efnið á mark­að­i,“ sagði hann.

Auglýsing

Þá benti þing­mað­ur­inn á að sem betur fer not­uðu flestir áfengi í hófi en rann­sóknir sýndu að hömlur á aðgengi skil­uðu árangri í þeirri við­leitni stjórn­valda að lág­marka óæski­leg áhrif á lýð­heilsu í land­inu.

„Sem dæmi um frum­vörp sem snúa að breyt­ingum á áfeng­is­lögum og koma upp í hug­ann má nefna frum­varp um aðkomu sveit­ar­fé­laga að stað­ar­vali áfeng­is­versl­ana, sala áfengis á fram­leiðslu­stað, frum­varp um sölu áfengis á sunnu­dögum og leyfi til sölu áfengis í íslenskum net­versl­un­um. Mér að vit­andi liggur ekki lýð­heilsu­mat til grund­vallar þessum frum­vörp­um. Myndi það vera veru­lega til bóta og mun ég því leggja slíkt til,“ sagði hann.

Margt breyst frá árinu 1998

Jóhann Frið­rik sagði jafn­framt að hann væri sjálfur hlynntur frelsi með ábyrgð og vildi því taka fram að í áfeng­is­lögum segði að til­gangur lag­anna væri að vinna gegn mis­notkun áfeng­is.

„Lögin eru frá 1998, en frá þeim tíma hefur margt breyst, sér í lagi á sviði for­varna og rann­sókna. Ég tel því mik­il­vægt að farið verði í heild­ar­end­ur­skoðun á áfeng­is­lögum með það að mark­miði að taka til­lit til sam­keppn­is­sjón­ar­miða, mis­ræmis á milli inn­lendra og erlendra aðila, en fyrst og fremst þeirra sjón­ar­miða er snúa að for­vörn­um, áhrifum áfeng­is­neyslu á börn og ung­linga og lýð­heilsu í land­in­u,“ sagði hann að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent