Vill tryggja að fólk fái að mótmæla fyrir framan sendiráð án truflana lögreglu

Þingmaður Pírata gerði mótmæli fyrir framan sendiráð að umtalsefni á Alþingi í vikunni. Hún hvatti alla þingmenn til að tryggja að fólk fengi áfram að mótmæla fyrir framan sendiráð án truflana lögreglu.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata.
Auglýsing

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata benti á undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni að ekki væri hægt að mót­mæla fyrir framan sendi­ráð hér á landi án þess að eiga það á hættu að vera vísað í burtu af lög­reglu eða jafn­vel vera hand­tek­inn.

Hún hóf mál sitt á því að beina athygl­inni að sam­stöðu­mót­mælum með borg­ur­unum í Úkra­ínu fyrir utan sendi­ráð Rúss­lands. „Við höfum fylgst með af ákveð­inni aðdá­un, að minnsta kosti sú sem hér stend­ur, hvernig mót­mæl­endur í Rúss­landi mót­mæla stríð­inu í Úkra­ínu þrátt fyrir að eiga vissa yfir höfði sér hand­töku fyrir að lýsa skoð­unum sín­um, fyrir að mót­mæla,“ sagði hún.

„Ímyndum okkur hins vegar að þessir mót­mæl­endur sem stóðu fyrir framan rúss­neska sendi­ráðið hefðu fengið þau fyr­ir­mæli frá lög­reglu að færa sig í burtu, færa mót­mælin ann­að, þau væru fyr­ir, rúss­neska sendi­herr­anum þætti þetta óþægi­legt og hann vildi helst að þau myndu bara fara.

Og þegar mót­mæl­endur hefðu ekki brugð­ist vel við, þ.e. hefðu bara ekki far­ið, þá hefði lög­reglan hand­tekið alla þessa mót­mæl­endur fyrir að hlýða ekki fyr­ir­mælum lög­reglu um að gjöra svo vel að fara og hætta að trufla rúss­neska sendi­herrann,“ sagði hún.

Auglýsing

Maður hand­tek­inn í tvígang fyrir að færa sig ekki

Benti Þor­hildur Sunna á að þetta væri hægt á Íslandi í dag. „Þetta hefur einn maður raunar upp­lifað fyrir framan annað sendi­ráð í tvígang. Það var hins vegar ekki rúss­neska sendi­ráðið heldur það banda­ríska þar sem einn maður stóð með skilti og var að mót­mæla stríðs­rekstri Banda­ríkja­manna. Hann var beð­inn um að færa sig þrátt fyrir að valda engum ama nema kannski ein­hverjum sjón­rænum ama fyrir sendi­herra Banda­ríkj­anna. Og þegar hann færði sig ekki var hand­tek­inn og var að lokum dæmdur fyrir að hafa ekki hlýtt fyr­ir­mælum lög­reglu um að færa sig. Þetta hefur gerst í tvígang nýlega á Íslandi. Þetta er gall­inn við 19. gr. lög­reglu­laga. Hann brýtur á rétti fólks til frið­sam­legra mót­mæla.“

Í þess­ari grein sem Þór­hildur Sunna vísar til segir að almenn­ingi sé „skylt að hlýða fyr­ir­mælum sem lög­reglan gef­ur, svo sem vegna umferð­ar­stjórnar eða til þess að halda uppi lögum og reglu á almanna­færi“.

Í ræðu sinni sagð­ist þing­mað­ur­inn vera með í vinnslu mál sem tekur á þessu og hvatti Þór­hildur Sunna alla þing­menn til að tryggja að fólk fengi áfram að mót­mæla fyrir framan sendi­ráð án trufl­ana lög­reglu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent