Willum var hlynntur því að leyfa veirunni að ganga án sóttvarnatakmarkanna síðasta haust

Viðhorf fyrrverandi og núverandi heilbrigðisráðherra um að leyfa kórónuveirunni að ganga án sóttvarnatakmarkana eru mjög ólík. Samkvæmt kosningaprófi RÚV síðastliðið haust var Svandís mótfallin því en Willum var 89 prósent sammála fullyrðingunni.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra var hlynntur því síðasta haust að leyfa ætti kórónuveirunni að ganga án sóttvarnatakmarkana. Þáverandi heilbrigðismálaráðherra var alfarið á móti því á þeim tíma.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra var hlynntur því síðasta haust að leyfa ætti kórónuveirunni að ganga án sóttvarnatakmarkana. Þáverandi heilbrigðismálaráðherra var alfarið á móti því á þeim tíma.
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir stefnu­breyt­ingu hafa orðið í bar­átt­unni við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn í dag þegar aflétt­ing­ar­á­ætlun stjón­valda var kynnt. Í stað þess að styðj­ast við aðferða­fræði temprunar líkt og gert hefur verið síð­ustu tvö ár er stefnan að opna sam­fé­lag­ið. „Sem er auð­vitað búið að vera loka­mark­miðið allan tím­ann,“ sagði Katrín í blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í Safna­hús­inu í dag.

Við­horf for­sæt­is­ráð­herra frá því síð­asta haust hefur greini­lega breyst en í kosn­inga­prófi RÚV síð­asta haust tók Katrín ekki vel undir þá full­yrð­ingu að leyfa ætti kór­ónu­veirunni að ganga án sótt­varna­tak­mark­ana. Á sama tíma hefur staða far­ald­urs­ins breyst en ein af megin rökum sótt­varna­læknis við að hefja aflétt­ing­ar­á­ætlun er að þó svo að ómíkron-af­brigði kór­ónu­veirunnar sé mun meira smit­andi en önnur afbrigði er minna um alvar­leg veik­indi.

Katrín kvaðst vera 15 pró­sent sam­mála full­yrð­ing­unni síð­asta haust. Ef svör allra ráð­herra eru borin saman má merkja greini­legan mun á afstöðu þáver­andi og núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra. Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, heil­brigð­is­ráð­herra í síð­ustu rík­is­stjórn, var algjör­lega ósam­mála full­yrð­ing­unni um að leyfa ætti veirunni að ganga án sótt­varna­tak­markanna en Willum Þór Þórs­son, núver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, var 89 pró­sent sam­mála full­yrð­ing­unni.

Auglýsing
Svör ráð­herr­anna við full­yrð­ing­unni „Það á að leyfa kór­ónu­veirunni að ganga án sótt­varna­tak­markana“, þar sem miðað er við skal­ann 0-100 þar sem 0 er ósam­mála en 100 sam­mála, voru eft­ir­far­andi:

  • Willum Þór Þórs­son: 89%
  • Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir: 100%
  • Katrínt Jak­obs­dótt­ir: 15%
  • Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir: 63%
  • Guð­laugur Þór Þórð­ar­son: 72%
  • Guð­mundur Ingi Guð­brands­son: 0%
  • Svan­dís Svav­ars­dótt­ir: 0%
  • Sig­urður Ingi Jóhanns­son: 14%
  • Lilja Alfreðs­dótt­ir: 66%
  • Ásmundur Einar Daða­son: 29%

Hvorki Bjarni Bene­dikts­son né Jón Gunn­ars­son, þing­menn Sjálf­stæð­is­dlokks­ins og ráð­herrar í núver­andi rík­is­stjórn, svör­uðu kosn­inga­prófi RÚV í haust.

Af svör­unum að dæma gætti meira samæmis í svörum ráð­herra Vinstri grænna en hinna rík­is­stjórn­ar­flokk­anna tveggja. Áslaug Arna, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, var hlynnt­ust full­yrð­ing­unni um að láta veiruna ganga án sótt­varna­tak­markanna en Guð­mundur Ingi og Svan­dís alfarið ósam­mála full­yrð­ing­unni. Næst á eftir þeim kom Sig­urður Ingi og þar á eftir for­sæt­is­ráð­herra.

Hvað sem því líður er stað­reyndin sú að aflétt­ing­ar­á­ætlun stjórn­valda hefst á mið­nætti og ef allt gengur að óskum verða allar sótt­varna­tak­mark­anir afléttar 14. mars, rúmum tveimur árum eftir að far­ald­ur­inn braust fyrst út.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent