Yfir 1.600 greindust með kórónuveirusmit í gær

Fjöldi þeirra sem eru í einangrun eða sóttkví hefur tvöfaldast á einni viku, 20 liggja á sjúkrahúsi og sex þeirra eru á gjörgæslu. Alls eru 172 starfsmenn Landspítalans í einangrun.

Sýnataka – Suðurlandsbraut
Auglýsing

Í gær, fimmtu­dag­inn 30. des­em­ber greindust 1.601 með COVID-19 smit, þar af voru 44  sem greindust sem landamæra­smit. Alls voru 731 í sótt­kví. Þetta er lang­mesti fjöldi sem nokkru sinni hefur greinst með smit hér­lend­is. Þetta er í fyrsta sinn sem fleiri en þús­und smit grein­ast á einum degi.

Sem stendur eru 7.585 í ein­angrun og 6.424 í sótt­kví, en ákveðið var í gær að stytta ein­angr­un­ar­tím­ann úr tíu dögum í sjö og heim­ila svo­kall­aða vinnu­staða­sótt­kví. Sam­an­lagt eru því rúm­lega 14 þús­und manns í sótt­kví eða ein­angrun yfir ára­mót­in. Það eru rúm­lega tvö­falt fleiri en fyrir viku síð­an, en á aðfanga­dag jóla voru 6.781 í sótt­kví eða ein­angr­un.

20 liggja á sjúkra­­­húsi með COVID-19 þar af sex á gjör­­­gæslu og fimm þeirra eru í önd­un­­­ar­­­vél. Alls eru 172 starfs­menn Land­spít­ala í ein­angrun sem stend­ur. 

Fyrsta til­­­­­fellið af kór­ón­u­veirunni var stað­­­fest hér á landi 28. febr­­­úar árið 2020. Síðan þá eru liðnir 22 mán­uðir og frá þeim tíma hafa 27.059 smit greinst. 

Auglýsing
Ástæða þess að smitum hefur fjölgað skarpt er útbreiðsla ómíkron-af­brigðis veirunnar hér­­­lend­­is.

að afbrigði hefur dreifst á leift­­­ur­hraða um ver­öld víða, um nokkuð tak­­­marka­­­laus sam­­­fé­lög manna ólíkt því sem gerð­ist í delta-­­­bylgj­unni, höfum við ekki enn fengið stað­­­fest­ingu á því hversu skað­­­legt það er.

Það sem vís­inda­­­menn hafa þó sagt er að jafn­­­vel þótt ómíkron valdi almennt mild­­­ari sjúk­­­dóms­ein­­­kennum en delta gæti sú bylgja sem nú rís sligað heil­brigð­is­­­kerfi af þeirri ein­­­földu ástæðu að þegar gríð­­­ar­­­lega margir smit­­­ast sam­­­tímis mun fjölga í hópi þeirra sem þurfa sjúkra­­­húsinn­lögn – hvort sem veiran kall­­­ast ómíkron eða delta.

Arnar Páls­­­son erfða­fræð­ing­ur sagði við Kjarn­ann skömmu fyrir jól að fjölg­un­­­ar­­­geta ómíkron sé meiri en delta, ann­­­arra afbrigða og upp­­­runa­­­legu gerðar veirunn­­­ar. „Það þýðir að með tíð og tíma verður ómíkron alls­ráð­andi í öllum stofn­um, það er að segja á öllum svæðum þar sem veiran geis­­­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent