Framsókn er ABBA, íslenska efnahagsrútan og skortur á pólitískum ómöguleika

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er orð­inn eins og þáttur af „24“, síð­ustu mín­út­urnar af hverjum þætti láta þig þrá að horfa strax á þann næsta, sem er vana­lega ein­ungis einum þjóð­fé­lags­um­ræðu­þætti und­an. Vig­dís Hauks­dóttir vill reyndar meina að flokk­ur­inn sé eins og ABBA, sem hefur verið valin besta póli­tíska lík­ing árs­ins hingað til af dóm­nefnd Kvik­unn­ar.

Í þeirri sam­keppni rétt marði hún Lilju Alfreðs­dóttur utan­rík­is­ráð­herra, sem tal­aði um „ís­lensku efna­hags­rút­una“ í eld­hús­dags­um­ræðum á mánu­dag. Stjórn­endur Kvik­unnar voru sam­mála um að þetta hafi verið til­raun Lilju til að færa íslenskt stjórn­mála­lík­inga­mál frá sjáv­ar­út­vegi og að ferða­þjón­ustu, sem er nú orðin helsti atvinnu­vegur þjóð­ar­inn­ar.

Könnun MMR sýnir að nær allir hópar sam­fé­lags­ins nema rétt rúmur helm­ingur þeirra sem kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn voru á móti nýjum búvöru­samn­ing­um. Það kom ekki í veg fyrir að þeir voru keyrðir í gegn. Án þess að það þætti póli­tískur ómögu­leiki.

Svo þurfti að ræða kostnað við hvert atkvæði í for­seta­kosn­ing­un­um, stjórn­mála­þrosk­ann sem von­andi mun fylgja minni­hluta­stjórnum og ofurein­vígið á milli Hill­ary Clinton og Don­ald Trump.

Þetta og margt fleira í Kviku­þætti vik­unnar þar sem Þór­unn Elísa­bet Boga­dótt­ir, aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarn­ans, og Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri hans, fara yfir það helsta sem er á döf­inni í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023