Erkitýpur kjósenda stjórnmálaflokka, tíminn og vatnið og klandur GAMMA

Í vöru­borði Kvik­unnar í dag er ekk­ert minna en sjálfur tím­inn og vatnið sem Andri Snær Magna­son rit­höf­undur fjallar um í nýju bók­inni sinni, ólíkar týpur meðal kjós­enda stjórn­mála­flokka, gíf­ur­leg vand­ræði GAMMA og þrengri láns­skil­yrði hjá Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna.

Í síð­ustu viku færðu tveir sjóðir í stýr­ingu GAMMA niður virði eigna sinna um millj­arða króna. Eigið fé Novus, sjóðs í stýr­ingu hjá GAMMA, var metið á 4,4 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót en nú, eftir að eignir sjóðs­ins voru end­ur­metn­ar, er eigið fé 40 millj­ónir króna. Þá hefur jafn­framt verið greint frá því að fleiri sjóðir á vegum félags­ins séu í vand­ræð­u­m. 

Íslenskt stjórn­mála­lands­lag hefur breyst mikið á und­an­förnum árum. Þjóðin hef­ur  snúið baki við fjór­flokka­kerf­inu og í síð­ustu kosn­ingum náðu átta flokkar á þing en hvers konar erkitýpur kjósa þessa átta flokka?

Þá hefur aðgengi lands­manna að hag­stæðum lánum verið skert eftir að stjórn eins stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins, Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna, ákvað í síð­ustu viku að þrengja láns­skil­yrði sjóðs­ins. Þá hefur sjóð­­ur­inn jafn­framt ákveðið að hætta að lána nýjum lán­tak­endum verð­­tryggð lán á breyt­i­­legum vöxt­um, en þau hafa verið einna hag­­kvæm­­ustu lánin sem í boði hafa verið á und­an­­förnum árum. 

Birna Stef­áns­dóttir stjórnar þætt­inum og með henni eru Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarn­ans og Bára Huld Beck, blaða­mað­ur. 

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023