Samtal við samfélagið – Hvert fara peningarnar? Kynjuð fjármál á Íslandi

Gestur vik­unnar er Finn­borg Salóme Stein­þórs­dótt­ir, nýdoktor í kynja­fræði við Háskóla Íslands. Finn­borg lauk B.A. gráðu í félags­fræði frá Háskóla Íslands og síðan M.A og dokt­ors­gráðu í kynja­fræði frá sömu stofn­un. Í dokt­ors­verk­efn­inu sínu beindi Finn­borg sjónum að kynj­uðum fjár­málum sem felst í því að skoða hvernig pen­ingum er veitt (eða ekki veitt) á kynj­aðan hátt og beindi hún sjónum að háskólaum­hverf­inu á Íslandi.

Rann­sóknir hennar sýna að fjár­munum er með kerf­is­bundnum hætti beint til greina sem almennt eru taldar karllæg­ari sem og að fram­gangs- og umb­un­ar­kerfi háskól­anna verð­launi frekar þætti sem almennt tengj­ast körl­um.

Þær Finn­borg og Sig­rún ræða hið kynj­aða háskólaum­hverfi á Íslandi, sem er sér­lega áhuga­vert í alþjóð­legu sam­hengi þar sem við teljum oft að hér á landi séum við búin að ná kynja­jöfn­uði. Að auki ræða þær aðrar rann­sóknir Finn­borg­ar, til dæmis um karla­menn­ingu innan lög­regl­unnar sem og stöðu kynj­anna á Íslandi í alþjóð­legum sam­an­burði.

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023