Ástarsamband Carlos Queiroz og Íran eitt það fallegasta sem til er

Í Sparkvarpi vik­unnar var sjón­unum beint að Íran, Írak og Sýr­land þar sem áhuga­verðir hlutir eru að ger­ast.

Sýr­land er komið í umspils­leik gegn Ástr­alíu í und­ankeppni Heims­meist­ara­móts­ins 2018 í knatt­spyrnu sem fer fram í næsta mán­uði. Með sigri mætir Sýr­land sig­ur­veg­ara úr leik Banda­ríkj­anna og Trini­dad og Tobago. Því er mögu­leiki að óvin­irnir Sýr­land og Banda­ríkin mæt­ist í úrslita­leik um laust sæti á HM í Rúss­landi á næsta ári. Strák­arnir veltu fyrir sér þess­ari áhuga­verðu stöðu sem er komin upp og einnig gengi Sýr­lands í und­ankeppni HM.

Fáar Asíu­þjóðir hafa verið að standa sig jafn vel og Íran upp á síðkast­ið. Íran er að fara á sitt annað HM í röð og hefur sýnt það að þeir eru eitt öfl­ug­asta lands­liðið í Asíu. Liðið spil­aði þétt og skipu­lagt og fékk ekki á sig mark fyrr en í síð­asta leik síns rið­ils gegn Sýr­landi sem end­aði 2-2. Car­los Queiroz er þar við stjórn­völ­inn og ætlar sér að koma Íran í fyrsta sinn upp úr riðl­inum á HM.

Þrátt fyrir að Írakar komust ekki á HM að þessu sinni hefur landið átt sín ágætu ár í fót­bolta. Strák­arnir rifj­uðu upp þá tíma þegar þeir voru upp á sitt besta, meðal ann­ars þegar þeir komust á HM 1986 og þegar þeir unnu Asíu­bik­ar­inn 2007. Í bæði skiptin náði liðið ekki að fylgja eftir góðu gengi.

Sparkvarpið er á Twitter – @Sparkvarpid

Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023